Þá kviknuðu neistar sem hafa blossað upp annað slagið 9. október 2012 13:23 Erla Ragnarsdóttir
Hljómsveitin Dúkkulísurnar á þrjátíu ára afmæli og við erum búnar að vera að fagna því það sem af er ári, en hinn raunverulegi afmælisdagur er á morgun, því hún var stofnuð 10. október 1982,“ segir Erla Ragnarsdóttir, söngkona Dúkkulísanna, um tilefni afmælishátíðarinnar sem haldin verður á Café Rosenberg annað kvöld. "Við ætlum að fagna afmælinu með allsherjargleði, rifja upp söguna og gömul lög. Svo erum við með litla sýningu þar sem við sýnum ýmislegt frá ferlinum; kjóla, mastera, myndir, plaköt, hljóðfæri og svona eitt og annað smálegt.“ Þið hafið verið að spila villt og galið allt þetta ár, eða hvað? „Já, þetta hófst allt með Aldrei fór ég suður um páskana. Við komum saman fyrir það og æfðum eins og vitleysingar, keyrðum svo saman vestur og það var voða gaman hjá okkur. Þetta kveikti neista sem hafa verið að blossa upp annað slagið síðan og við erum búnar að vera að spila úti um allt land.“ Fyrsta lag Dúkkulísanna sem sló í gegn var Pamela í Dallas, hvað er hún orðin gömul blessunin? „Pamela kom út 1984, tveimur árum eftir að við stofnuðum hljómsveitina, en í millitíðinni höfðum við unnið Músíktilraunir 1983 og fengið plötusamning í kjölfarið.“ Er hljómsveitin enn í þeirri mynd sem hún var 1982? „Eiginlega. Reyndar erum við orðnar sjö í dag en vorum fimm í upphafi. Upphaflegi gítarleikarinn hætti veturinn 1983 en fljótlega upp úr því fengum við nýjan gítarleikara sem er með okkur enn í dag. Hljómborðsleikarinn hætti líka og við fengum nýjan, en svo kom sú fyrsta til baka og nú eru þær tvær. Að lokum slóst svo slagverksleikari í för með sveitinni.“ Er eitthvað fleira fyrirhugað áður en afmælisárið er á enda runnið? „Já, já. Við höfum verið að fá blikk frá ýmsum stöðum og það er ýmislegt í farvatninu. Við munum til dæmis spila í tengslum við Airwaves og svo erum við búnar að vinna nýtt lag sem vonandi kemur út á afmælisdaginn. Við erum ekkert hættar, langt frá því.“
Mest lesið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Sjá meira