Skautað til sigurs 9. október 2012 13:33
Clair, sem er frá Bretlandi, hefur starfað sem skautakennari undanfarin fimmtán ár í Bretlandi, Kanada og Bandaríkjunum. Þar áður hafði hún sjálf æft og keppt í tuttugu ár. Hún ákvað að sækja um starf á Íslandi til að vera nær föðurlandi sínu. “Ég missti föður minn og í kjölfarið vildi ég vera nær fjölskyldunni. Ég var að vinna í Kanada, og því sótti ég um starfið hér„ segir Clair. Það er mikill fengur fyrir uppbyggingarstarf Bjarnarins að fá manneskju eins og Clair, með umfangsmikla þekkingu og alþjóðlega reynslu, til liðs við sig. Clair segir mikilvægt í uppbyggingarstarfi íþróttafélags að hafa langtímamarkmið. “Það hefur náðst gríðarmikill árangur undanfarið ár. Við settum okkur langtímamarkmið og byrjuðum á að einbeita okkur að líkamsstyrk og tækni, sem hefur stórbatnað. Á næsta ári munum við svo leggja áherslu á andlega þáttinn, en það er gríðarmikilvægt að hafa sterka sýn og trú á sjálfum sér í þessari íþrótt.„ Clair segir listskauta vera með erfiðari íþróttum. “Það er svo margt sem kemur til; þátttakendur þurfa að vera liðugir, sterkir og fimir með góðar tímasetningar og mikla tækni. Allt þetta þarf svo að samræma með tónlist. Ofan á það þurfa þátttakendur einnig að líta tignarlega út á ísnum. Til þess að allt gangi upp þarf að huga vel að og styrkja andlegu hliðina. Listskautar eru flóknari íþrótt en til dæmis fótbolti eða hlaup að því leyti að þar sameinast íþrótt og list.„ Starfsemi listskautadeildar Bjarnarins skiptist í nokkra þætti. Skautaskóladeild með um áttatíu iðkendur frá fimm til sextán ára sem æfa tvisvar í viku og fara auk þess á þrekæfingar. “Svo er C-deild þar sem eru um fimmtíu iðkendur á aldrinum fimm til nítján ára sem ekki hafa tekið grunnpróf, æfa 3-4 sinnum í viku auk þrekæfinga. Að lokum eru það A- og B-deild þar sem æfa um fjörutíu iðkendur sem hafa lokið grunnprófi. Þeir keppa á sambandsmótum sem haldin eru fjórum sinnum á ári og iðkendur eldri en 12 ára í A-deild eiga möguleika á að komast á alþjóðleg mót og í landslið Íslands.„ “Núna á fimmtudaginn mun Júlía Grétarsdóttir keppa á alþjóðamótinu Junior Grand Prix í Þýskalandi. Þar keppir hún í unglingaflokki á móti 31 keppenda, frá Kína, Rússlandi og Bandaríkjunum og fleiri löndum. Agnes Dís Brynjarsdóttir og Þuríður Björg Björgvinsdóttir munu svo keppa í Austurríki í fyrir hönd Íslands í nóvember, þannig að það er mikið um að vera hjá okkur um þessar mundir„ segir Clair stolt af stelpunum sem hún þjálfar. Nánari upplýsingar um skautafélagið má sjá á heimasíðu þess www.bjorninn.com.
Mest lesið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Britney ákærð fyrir ölvunarakstur Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Stór brjóst eru stór Lífið Guðjón Friðriksson heiðursborgari Reykjavíkur Menning „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Fleiri fréttir Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Sjá meira