Innlent

Hjólaði á ljósastaur - ryðgaður eftir grasreykingar

Karlmaður á þrítugsaldri slasaðist lítillega þegar hann hjólaði á ljósastaur í Reykjanesbæ um helgina. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum var maðurinn í annarlegu ástandi.

Hann tjáði lögreglu að hann hefði verið eitthvað ryðgaður í kollinum eftir grasreykingar og því hafnað á staurnum. Gert var að meiðslum mannsins á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Þá var lögreglu einnig tilkynnt um að ekið hefði verið á ljósastaur í Sandgerði. Sá sem það gerði lét sig hverfa af vettvangi, án þess að gera viðvart um ákeyrsluna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×