Hleypur, hjólar og syndir Hugrún Halldórsdóttir skrifar 21. júlí 2012 20:30 Kári Steinn Karlsson, maraþonhlaupari.
Kári Steinn Karlsson maraþonhlaupari ætlar að kveðja landsmenn á morgun með því að taka þátt í þríþraut, en á mánudag tekur afreksmaðurinn ungi stefnuna á Ólympíuleikana í Lundúnum. Kári Steinn, Steinar og Guðlaug keppa saman í „½ Járnkarli" á morgun. Guðlaug hefur leik og syndir 1900 metra, þá tekur Steinar við og hjólar 90 kílómetra og að því loknu hleypur Kári Steinn hálft maraþon, sem er þó aðeins undir áætlun samkvæmt æfingarplani ólympíufarans. „Þetta á að vera 35 km dagur og hlaupið er 21 km þannig að þá bæti ég við, hleyp eitthvað á undan í upphitun og svo sjáum við til hvað ég verð kominn með marga kílómetra þegar ég verð kominn í mark, þá bæti ég bara aðeins við," segir Kári Steinn. Hvað ætlarðu svo að gera eftir Járnkarlinn? Ætlarðu að taka því rólega? Eða tekurðu því einhverntímann rólega? „Tek því aldrei alveg rólega held ég, ég á flug til London daginn eftir og svo eru það áfram nokkuð stífar æfingar, maður er samt farinn að létta álagið umtalsvert en það verður samt æft vel næstu vikurnar og svo verður síðasta vikan fyrir hlaupin nokkuð auðveld, það verður samt 100 km plús það." Kári Steinn keppir á Ólympíuleikunum þann 12. ágúst og verður þar með annar Íslendingurinn til að ná þeim merka árangri. Honum líst honum vel á að kveðja landið með þátttöku sinni í Járnkarlinum. „Það má alveg segja það, í staðinn fyrir að láta sig bara hverfa, vera með í svona skemmtilegum viðburði. Og þá verður æfingin oft betri fyrir vikið, maður er svona betur stemmdur en að vera einn einhversstaðar að hlaupa í Heiðmörkinni." Þannig að þetta á eftir að hjálpa þér fyrir Ólympíuleikana? „Já, ætli það ekki bara."
Mest lesið Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Innlent Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Innlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Innlent Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Innlent Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Innlent Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Innlent Fleiri fréttir Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Ölvun og þjófnaðir Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður „Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Skjálftahrina í Mýrdalsjökli „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Sjá meira