Vill að eftirlaunaaldur verði hækkaður Karen Kjartansdóttir skrifar 5. júlí 2012 19:00
Það er óeðlilegt að gera ráð fyrir því að fólk fari á eftirlaun þegar það verður 67 ára. Þetta segir þingmaður sem hyggst leggja fram frumvarp um breytingar á kerfinu. Bregðast verði við, því skattgreiðendum fækki og eldri borgurum fjölgi. Skuldbindingar vegna lífeyrisgreiðslan fer víða vaxandi í heiminum með fjölgun eldri borgara og lengri lífaldurs. Slíkar skuldbindingar eru meðal annars talin ein af ástæðunum fyrir efnahagskreppunni í Grikklandi en þar þykir kerfið einkar rausnarlegt og fólk getur byrjað snemma á eftirlaunum. Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðsflokksins, telur mikilvægt að Íslendingar horfist í augu við þennan vanda fljótlega. „Menn þurfa að vera mjög varkárir með að lesta vinnandi menn með lífeyrisgreiðslum, því það er svo auðvelt að lofa lífeyrisgreiðslum því hann borgast ekki fyrr en einhver tímann í framtíðinni," segir Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Pétur segir óeðlilegt sé að miða við að fólk verði gamalmenn 67 ára, sem reyndar er aldur sem Otto von Bismarck kannslari Þýskalands miðaði við þegar hann ákvað að greiða gömlum hermönnum lífeyri á öndverðri 19. öld, þegar ævilengd fólks var mun styttri. „Það er að mínu mati allt of lágur aldur, fólk er orðið svo miklu frískara en það var fyrir svona þrjátíu fjörtíu árum og ævin er alltaf að lengjast þannig mér þætti eðlilegt að vinnualdurinn ætti að sjálfsögðu líka að lengjast, fyrir utan það að vinnan er ákveðin lífsgæði og það að svipta menn þeim gæðum getur verið mjög slæmt." Hann hefur lagt til að 67 ára mörk lífeyrisgreiðslna verði afnumin. Betur færi á að fólk geti valið hvenær það hefur töku lífeyris eftir þann aldur. Þeir sem þess óski geti byrjað snemma á eftirlaunum sem myndi þá hafa í för með sér að lífeyrinn lækkaði en aðrir gætu tekið lífeyrinn út seinna og þá fengið hærri greiðslur. Svokallaður kynslóðasamningur, felst í því að ef foreldrar hugsa um börn sín hugsi þau um foreldra sína í ellinni. Þessi samningur er enn í gildi en hefur í gegnum tíðina færst meira yfir á almannatryggingar og lífeyrissjóði.
Mest lesið „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Innlent Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Erlent Fleiri fréttir „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Sjá meira