Dæmdur morðingi og hrotti ákærðir fyrir fjárkúgun og frelsissviptingu 26. júní 2012 14:30
Tveir dæmdir ofbeldismenn hafa verið ákærðir fyrir frelsissviptingu, fjárkúgun og tilraun til ráns þegar þeir neyddu karlmann upp í útibú Íslandsbanka á Stórhöfða í september síðastliðnum í þeim tilgangi að láta hann taka fé út af reikningi sínum. Mennirnir tveir fóru heim til bræðra og ógnuðu þeim meðal annars með vasahníf. Mennirnir hótuðu öðrum manninum ofbeldi og kröfðust þess að hann afhenti þeim hálfa milljón króna. Því næst fór annar maðurinn með annan bróðurinn í Íslandsbanka á meðan hinir biðu í íbúðinni. Í bankanum tókst fórnarlambinu hinsvegar að gefa gjaldkera merki með þeim afleiðingum að lögreglan var kölluð til. Voru mennirnir þá handteknir og úrskurðaðir í gæsluvarðhald eins og Vísir greindi frá síðasta haust. Mennirnir eru einnig ákærðir fyrir fíkniefnalagabrot, líkamsárás og gripdeild. Báðir hinna ákærðu eiga sér sögu ofbeldisbrota. Annar þeirra hlaut sextán ára óskilorðsbundið fangelsi árið 2000 fyrir að bana áttræðri konu í íbúð hennar við Espigerði. Í niðurstöðum geðheilbrigðisrannsóknar sem lagðar voru fram í málinu á þeim tíma kom fram að maðurinn væri mjög hættulegur undir áhrifum eiturlyfja og hefði verið í mikilli neyslu frá fimmtán ára aldri. Hinn maðurinn var árið 2007 dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir hrottafengnar líkamsárásir, en hann í félagi við annan, réðst á mann á Akureyri með grófu ofbeldi. Maðurinn var meðal annars dæmdur fyrir að klippa fingur vinstri handar af fórnarlambinu með greinaklippum. Þá var maðurinn í sama máli dæmdur fyrir grófa líkamsárás fyrir að ráðast á konu sem ók leigubíl og berja hana ítrekað í höfuðið. Mál tvímenninganna verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á fimmtudaginn.
Mest lesið Féll í Jökulsárlón Innlent Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Innlent Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Segja fórnarlamb í Bakkakotsmálinu skilið eftir Innlent Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Innlent Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent Fara í aðgerðir fáist ekki svör Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Fleiri fréttir Stærsti skjálftinn 3,4 Fara í aðgerðir fáist ekki svör Handtekinn vegna stunguárásarinnar Segja fórnarlamb í Bakkakotsmálinu skilið eftir Skjálftahrina við Eldey Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Féll í Jökulsárlón Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Vill lægri skatta á matvöruverð og leitað að stungumanni Leita enn að geranda í stungumáli Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Sjá meira
Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Innlent
Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Innlent