Innlent

Kanadískur ferðamaður endurheimti farangur sinn

Ferðamenn.
Ferðamenn.
Kanadískur ferðamaður varð fyrir því óláni um helgina að farangri hans var stolið á hóteli, sem hann gisti á í miðborginni.

Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var um að ræða veruleg verðmæti, meðal annars fartölvu og iPad, og varpaði þjófnaðurinn auðvitað skugga á annars ánægjulega heimsókn mannsins til Íslands.

Í morgun gat ferðamaðurinn hins vegar tekið gleði sína á ný, allavega að einhverju leyti, því lögreglunni hafði tekist að finna hina stolnu muni, eða flesta þeirra og þar á meðal fartölvuna og spjaldtölvuna.

Í framhaldinu kom maðurinn á lögreglustöðina og sótti hlutina sína og mátti það ekki seinna vera því ferðamaðurinn átti bókað flug til vesturheims síðdegis í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×