Innlent

Meintum barnaníðingi gert að yfirgefa réttarsal

Karlmanni, sem er ákærður fyrir að hafa beitt stúlku og dreng kynferðislegt ofbeldi, er gert að yfirgefa réttarsalinn á meðan þau bera vitni. Hæstiréttur Íslands staðfesti úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur.

Maðurinn er sakaður um að hafa beitt stúlkuna kynferðisofbeldi þegar hún var aldrinum tólf til fimmtán ára. Drenginn á hann að hafa misnotað þegar hann var fimm til sjö ára og þar til hann náði átján ára aldri. Í dag er drengurinn er 19 ára gamall en stúlkan 25 ára.

Í niðurstöðu Hæstaréttar Íslands segir að nærvera mannsins við við skýrslugjöfina gæti bæði orðið vitnunum sérstaklega íþyngjandi og haft áhrif á framburð þeirra. Var niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur því staðfest.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×