Innlent

Viðræður um verksamning hófust í dag

Kristján Már Unnarsson skrifar
Gangamunninn Akureyrarmegin mun blasa við bæjarbúum. Bílaumferð í gegn hefst líklega árið 2016.
Gangamunninn Akureyrarmegin mun blasa við bæjarbúum. Bílaumferð í gegn hefst líklega árið 2016. Mynd/Baldur Hrafnkell Jónsson.
„Ég met það þannig að verkframkvæmdir, ef allt gengur eftir, gætu verið að hefjast í byrjun september," segir Karl Þráinsson, forstjóri ÍAV, eftir fyrsta fund með Vegagerðinni í dag um gerð verksamnings vegna Vaðlaheiðarganga.

Karl býst við að einhverjar vikur taki að ganga frá samningum, því verksamningurinn er ekki sá eini. Hlutafélagið Vaðlaheiðargöng þarf að gera lánasamning við fjármálaráðuneytið og síðan að semja við Vegagerðina um að halda utan um verkefnið, en hún mun væntanlega koma fram sem fulltrúi verkkaupa gagnvart verktökunum, ÍAV og Marti.

Þegar tilboð voru opnuð í október í haust var miðað við að göngin yrðu tilbúin sumarið 2015, en þá vonuðust menn til að framkvæmdir kæmust í gang um síðustu áramót. Andstaða á Alþingi og innan ríkisstjórnar hélt málinu hins vegar í óvissu allt þar til fyrir tveimur vikum að skýr meirihluti fékkst á Alþingi fyrir því að ríkið lánaði 8,7 milljarða króna til verksins.

Forstjóri ÍAV efast um að hægt verði að standa við upphaflega áætlun um verklok og telur raunhæfara að göngin verði tilbúin sumarið 2016. Þetta sé þó spurning um hvað verkkaupinn vill, og hvort hann vilji láta vinna verkið hraðar, en það muni skýrast í þeim viðræðum sem nú eru hafnar.

Karl vonast til að fyrsta sprenging fyrir göngunum geti orðið í desember, - ef komið verði nærri jólum gæti hún þó dregist fram yfir áramót.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×