Laus eftir að hafa stungið konu tólf sinnum - móðir konunnar óttaslegin Karen Kjartansdóttir skrifar 14. maí 2012 00:00
28 ára gömul kona sem lifði af morðtilraun í Kópavogi í lok apríl furðar sig á því að árásarmaður hennar gangi laus. Hún hlaut tólf hnífstungur og óttast mjög að á hana verði ráðist aftur. Konan undrar sig á því að lögreglan krefjist ekki frekara gæsluvarðhalds yfir árásarmanninum og ætlar að flýja land. Árásin átti sér stað 21. apríl. Árásarmaðurinn er fyrrverandi stjúpsonur konunar. Kvöldið örlagaríka opnaði hún dyrnar fyrir piltinum því hún hélt að faðir hans væri fyrir utan. Pilturinn réðst þá samstundis ráðist á hana af miklum ofsa. Henni tókst að ná hnífnum af honum og lagðist á hann. Þá sparkaði pilturinn í höfuð hennar og tók hana því næst kyrkingartaki. Konunni tókst þó að rífa sig lausa, komast upp á efri hæð þar sem faðir drengsins var. Faðir piltsins sá þá til hans og bjargaði henni. Fjórar hnífstungnanna voru í læri konunnar og fór ein þeirra í slagæð. Þá var hún stungin í augnkrók, tvisvar við bringubein, tvisvar í vinstri handlegg og í vinstra brjóst. Stærsta stungan var síðan í kvið en hún orsakaði það að meltingarvökvi flæddi um kviðarholið. Konan þurfti að fara í stóra aðgerð vegna þessa auk þess sem hún hlaut skurði á hálsi. Konan treysti sér ekki í viðtal enda skammt liðið frá árásinni og hún er enn að ná sér af sárum sínum. Hún óttast um líf sitt og finnst að lögreglan hafi lítilsvirt líf sitt og öryggi með því að krefjast ekki lengra gæsluvarðhalds en það rann út síðastliðinn föstudag. „Hann tekur með sér hníf og ræðst strax á hana. Hann tekur hana kyrkingartaki og byrjar strax að stinga hana í brjóstholið endurtekið og mjög áráttukennt. Hún náði samt að halda honum frá þannig áverkarnir ná ekki allir að verða mjög miklir," segir Guðný Björk Guðjónsdóttir, móðir konunnar. Guðný óttast um líf dóttur sinnar og telur það hafa orðið henni til lífs að árásarmaðurinn valdi svo stóran hníf að hann gekk ekki á milli rifja henni heldur lenti á bringubeini. „Það er erfitt að komast í gegnum þessi bein en hann beindi hnífstungunum að mestu leyti í áttina að hjartanu vinstra megin þannig ég get ekki séð annað en þetta hafi verið morðtilraun," segir Guðný. Fréttastofa leitaði skýringa hjá lögreglunni í dag um hvers vegna ekki hefði verið farið fram á lengra gæsluvarðhald en til 11 maí. Í bréfi fengust þau svör að: „Ekki var talin ástæða til að krefjast frekari framlengingar þar sem rannsóknarhagsmunir voru ekki lengur í húfi og vistun ekki lengur nauðsynleg með tilliti til almannahagsmuna." „Ég er engan veginn örugg með þennan mann einhver staðar í Kópavogi, nokkra kílómetra frá okkur," segir Guðný. „Hún er mjög óttaslegin enda árásin hrikalega hrottafengin og hún var algjörlega sannfærð um að hún væri að deyja og það var alveg yfirlýst markmið hans að drepa hana. Þremur vikum eftir árásina er hann bara laus og fer bara til mömmu og okkur er sagt að hann sé bara ekkert hættulegur. Hvernig getur einhver sagt að hann sé ekkert hættulegur eftir svona hrottalega árás?"
Mest lesið Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Innlent Óvænt ávarp forsætisráðherra: „Við munum verja lýðveldið Ísland“ Innlent Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Erlent Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Innlent Tveir menn fjárkúguðu ungan dreng Innlent Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Erlent Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Innlent Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Innlent Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Erlent Minnihlutinn hafi lagt fram eigið veiðigjaldamál: „Þetta er skrumskæling á lýðræðinu“ Innlent Fleiri fréttir „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Þykir leitt að hafa valdið uppnámi Ávarp forsætisráðherra og kjarnorkukafbátur við Grundartanga Minnihlutinn hafi lagt fram eigið veiðigjaldamál: „Þetta er skrumskæling á lýðræðinu“ Spyr hvort draga eigi valdhafa undir húsvegg og skjóta Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Óvænt ávarp forsætisráðherra: „Við munum verja lýðveldið Ísland“ Jökulhlaup úr Mýrdalsjökli í Leirá Syðri og Skálm enn í gangi Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Borgarbúar frekar hlynntir kílómetragjaldi en landsbyggðin Aðilar „einfaldlega ekki tilbúnir að teygja sig nógu langt“ Tveir menn fjárkúguðu ungan dreng Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Pilturinn er fundinn „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Sjá meira