Varaformaður efnahags- og viðskiptanefndar mætir ekki á fundi Breki Logason skrifar 17. maí 2012 18:48
Af þeim fjörutíu og tveimur fundum sem haldnir hafa verið í efnahags- og viðskiptanefnd á árinu hefur varaformaður nefndarinnar, Þráinn Bertelsson, mætt á fjóra. Hann mætti síðast á fund þann átjánda janúar. Þráinn er fulltrúi Vinstri grænna og gegnir varaformennsku í nefndinni sem er skipuð níu öðrum aðalmönnum. Formaðurinn Helgi Hjörvar hefur verið ansi duglegur að mæta sem og þau Lilja Mósesdóttir, Skúli Helgason og sjálfstæðismennirnir Tryggvi Þór og Guðlaugur Þór. Birkir Jón hefur lítið látið sjá sig og Magnús Schram hefur verið ansi duglegur að kalla inn varamenn. Með verstu mætinguna er samt Þráinn Bertelsson sem hefur í sjö skipti beðið einhvern að mæta á fund fyrir sig. Þráinn mætti ekki á fyrsta fund ársins sem haldinn var 4.janúar en byrjaði árið reyndar ansi vel. Mætti á fjóra næstu fundi, en síðan ekki söguna meir. Varaformaður efnahags- og viðskiptanefndar hefur ekki látið sjá sig á fundi síðan 18.janúar. Í þriðju grein laga um þingfararkaup segir að fyrsti varaformaður fastanefndar fái 10% álag á þingfararkaup. Ekki náðist í Þráinn í dag, en eftir því sem fréttastofa kemst næst var ákveðið að setja inn annan fulltrúa í nefndina. Þrátt fyrir að búið sé að halda 42 fundi á árinu hefur það ekki enn verið gert. Magnús Orri Schram segir að eftir að hann varð þingflokksformaður hætti hann í efnahags- og viðskiptanefnd og Magnús Norðdahl tók sæti hans. Hann segir nafna sinn hinsvegar vera varamann Katrínar Júlíusdóttur og geti því ekki orðið aðalmaður fyrir sig í opinberum gögnum. Því sé hann titlaður varamaður í nefndinni en sé í raun aðalmaður í efnahags- og viðskiptanefnd.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira