Fær níu milljónir í skaðabætur vegna gangaslags í MR 25. apríl 2012 17:47
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi íslenska ríkið til þess að greiða fyrrverandi nema Menntaskólans í Reykjavík um það bil níu milljónir króna í miskabætur. Maðurin er tólf prósent öryki eftir að hafa hálsbrotnað í svokölluðum gangaslag í MR sem haldinn var ár hvert í skólanum en hefur nú verið lagður af. Um var að ræða hefð innan skólans sem snérist um að útskriftarárgangur reyndi að hringja bjöllu við enda gangs á meðan ungmenni í öðrum árgöngum reyndu að koma í veg fyrir hringingu. Myndaðist við þetta mikil kös á afar litlu svæði við skólabjölluna. Neminn var í 6. bekk og gegndi starfi hringjara skólaárið 2008-2009, sem er elsta embættið innan skólans. Hringjari er valinn úr hópi 6. bekkinga og hlutverk hans er að hringja inn og út úr tímum allt skólaárið. Neminn heldur því fram að hefð sé fyrir því að hringjari taki þátt í gangaslag og það gerði hann. Umræddan dag hafði gangaslagurinn rétt hafist og var nemandinn um miðja vegu á ganginum. Hann fékk skyndilega þungt högg á höfuðið, sáran verk í háls og bak og hellu fyrir eyrun. Komst hann út úr þvögunni af eigin rammleik og fór að útidyrunum til að fá meira loft. Hann lýsti líðan sinni þannig fyrir héraðsdómi að honum hafi fundist eins og þyngsli væru í hálsinum og um stund þótt erfitt að anda. Leikfimikennari kom að honum og sá að eitthvað var að en neminn kveðst ekki muna vel eftir því sem gerðist á þessum tímapunkti. Það sem hann man næst er að hann fór með öðrum leikfimikennara út í skrifstofu í íþróttasalnum sem er í næstu byggingu og fékk hann þar kælingu á hálsinn og kom rektor þar einnig að. Leikfimikennarinn spurði nemann hvort hann þyrfti að fara á slysadeild en rektor tók af skarið um að fara skyldi með piltinn þangað. Eftir rannsóknir á spítalanum kom í ljós að neminn var tvíbrotinn á fyrsta hálslið og liðband rifið. Rektornum leist ávallt illa á hefðina og hafði sett henni strangar leikreglur og strangt eftirlit að auki. Þannig máttu nemarnir ekki vera berir að ofan, en sumir voru það engu að síður. Samt var leikurinn ekki flautaður af. Þá sýnir myndskeið, sem lagt var fyrir dóminn, að stæltir nemendur úr 6. bekk köstuðu sér úr stiga og af stigahandriði út yfir nemendur í 5. bekk. Komu þeir út yfir nemendurna í höfuðhæð. Framferði þetta var augljóslega stórhættulegt gagnvart þeim nemendum sem á gólfinu stóðu, þar sem mikil hætta skapaðist á því að af gæti hlotist áverkar á höfði eða hálsi. Í ljósi mikillar slysahættu hefði rektor, að mati dómsins, ekki átt að heimila að nemendur stykkju af og úr stiga út yfir höfuð annarra nemenda með þessum hætti. Verður að meta rektor skólans til gáleysis að hafa ekki stöðvað slaginn þegar nemendur fóru ekki eftir þeim reglum er settar höfðu verið og að hafa leyft nemendum úr 6. bekk að stökkva út yfir höfuð nemenda sem á gólfi stóðu. Telur dómurinn því sannað að stefnandi hafi hlotið áverka er stæðilegir nemendur köstuðu sér út yfir kösina. Með hliðsjón af þessu var ríkið dæmt skaðabótaskylt í málinu.
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Sjá meira