Fótbolti

Ajax jók við forskot sitt á toppnum

Kolbeinn í leik gegn Heracles.
Kolbeinn í leik gegn Heracles.
Kolbeinn Sigþórsson og félagar í Ajax eru í góðum málum á toppi hollensku úrvalsdeildarinnar eftir öruggan 5-0 sigur á Heerenveen í kvöld.

Kolbeinn spilaði síðustu 20 mínútur leiksins en náði ekki að skora að þessu sinni.

Jóhann Berg Guðmundsson og félagar hans hjá AZ Alkmaar misstigu sig svo gegn Twente er þeir gerðu jafntefli, 2-2. Ajax er því með þriggja stiga forskot á toppnum.

Jóhann Berg lék allan leikinn fyrir AZ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×