"Charlie Bit Me" rakar inn peningum 30. mars 2012 23:00
Fimm ár eru liðin síðan myndbandið „Charlie Bit Me" birtist á YouTube. Síðan þá hefur verið horft á myndbandið 436 milljón sinnum. Piltarnir og fjölskylda þeirra hafa hagnast gríðarlega á myndbandinu. Foreldrarnir hafa þó reynt að halda piltunum á jörðinni. Í myndbandinu má sjá hugljúft augnablik úr lífi Carr-fjölskyldunnar. Bræðurnir Harry og Charlie leika sér í hægindastól. Harry ögrar bróður sínum með því að veifa puttanum sínum fyrir framan hann - Charlie litli stenst ekki mátið og bítur í fingurinn. Faðir bræðranna, Howard Davies-Carr ákvað að setja myndbandið á YouTube svo að skyldmenni þeirra gætu skemmt sér yfir atvikinu. Eftir nokkrar vikur var búið að horfa á myndbandið 200 sinnum. Howard ákvað að hafa myndbandið ögn lengur á síðunni. „Ég fór á YouTube til að taka myndbandið af síðunni," sagði Howard í viðtalið við ABC fréttastofuna. „Allt í einu var búið að horfa á myndbandið nokkur þúsund sinnum. Hvaða fólk var eiginlega að horfa á þetta?"Carr-fjölskyldanmynd/ABCÞað var ekki fyrr en myndbandið hafði fengið rúmlega 50 milljón áhorf þegar Howard var bent á að hann gæti fengið auglýsingatekjur í gegnum myndbandið. Carr-fjölskyldan hefði allt eins getað unnið í happdrætti. Þau hafa þénað rúmlega hálfa milljón dollara á myndbandinu. „Charlie Bit Me" er talið það fyrsta sinnar tegundar. Á síðustu fimm árum hefur fjöldi myndbanda sprottið fram og náð gríðarlegum vinsældum á veraldarvefnum. Brot úr myndbandinu hafa birst í auglýsingum víða um heim og það er jafnvel til sérstakt smáforrit sem byggir á myndbandinu. Barnabækur byggðar á bræðrunum eru einnig á leiðinni. Foreldrar Harry og Charlie hafa þó reynt að halda piltunum í ákveðinni fjarlægð frá myndbandinu. Þannig hafa bræðurnir engan skilning á því hversu vinsælt myndbandið er í raun. Hagnaðurinn sem fengist hefur af myndbandinu hefur farið í sérstakan skólasjóð fyrir piltana. Hægt er að sjá myndbandið hér fyrir ofan.
Mest lesið Upplifir að þau hafi verið leidd í gildru Innlent Óttaslegnir eldri borgarar eftir endurtekna eldsvoða Innlent „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ Innlent Opna í Kaupmannahöfn en loka loftrýminu yfir Osló einnig vegna dróna Erlent Lýsa eftir Karli Helgasyni Innlent Þrettán konur höfðu samband svo að nauðgarinn færi í fangelsi Innlent Selenskí segir Rússa bera ábyrgð á drónum í Danmörku Erlent Björg ætlar að láta að sér kveða í Viðreisn Innlent Hertogaynjan fær reisupassann vegna tölvupósts til Epstein Erlent Rannsaka mál sex grímuklæddra manna sem réðust á einn Innlent Fleiri fréttir Duterte ákærður fyrir glæpi gegn mannkyninu Íbúar í Kína og Hong Kong búa sig undir Ragasa Selenskí segir Rússa bera ábyrgð á drónum í Danmörku Frakkar viðurkenna Palestínu en Ísrael fordæmir „pólitískan sirkús“ Opna í Kaupmannahöfn en loka loftrýminu yfir Osló einnig vegna dróna Hertogaynjan fær reisupassann vegna tölvupósts til Epstein Kastrup lokað vegna drónaflugs Jimmy Kimmel snýr aftur á skjáinn Ætla að tengja paracetamol við einhverfu Segir Pólverja ekki muna hika við að skjóta „hluti“ niður Byrjaðir að kenna hvor öðrum um stöðvun ríkisreksturs Til í viðræður en mun aldrei láta kjarnorkuvopnin af hendi „Ég hata andstæðing minn, fyrirgefðu Erika“ Í fyrsta sinn fleiri börn með offitu en í undirþyngd Ofurfellibylurinn Ragasa nálgast Filippseyjar Bilun hjá fjarskiptafyrirtæki sögð hafa valdið fjórum dauðsföllum Herþotur sendar á loft vegna rússneskrar eftirlitsflugvélar Fyrirgefur morðingjanum Bein útsending: Minningarathöfn Charlie Kirk Kanada, Bretland og Ástralía viðurkenna Palestínu Trump og Vance ávarpa minningarathöfn Charlie Kirk Búast við því að Bretar viðurkenni sjálfstæði Palestínu í dag Þrjátíu handteknir í óeirðum í Hollandi Vill mikilvæga herstöð aftur og hótar Afgönum öllu illu Austurríki hvetur ríki til að draga sig ekki úr Eurovison Grænlendingar ná ekki að klára hvalveiðikvóta Sænskur sjúkraflutningamaður myrtur í útkalli Trump og Selenskí funda á ný Miklar tafir á fjölda flugvalla vegna netárásar Cruz sagði hótanir Carr líkt og frá mafíósa í Goodfellas Sjá meira