Erlent

Árás kostaði 12 lögreglumenn lífið í Mexíkó

Ráðist var á hóp lögreglumanna og 12 þeirra felldir í Guerrero héraðinu í Mexíkó á sunnudag.

Lögreglumennirnir voru að rannsaka morð á tug manna sem höfðu verið hálshöggnir í héraðinu. Þar berjast tvenn glæpasamtök um fíkniefnamarkaðinn, önnur þeirra kallast La Familia og hin Knights Templar.

Litlar sem engar upplýsingar hafa fengist um málið hingað til annað en að fyrir utan þá sem féllu liggja níu lögreglumenn sárir á sjúkrahúsi eftir árásina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×