Erlent

Sjóða egg upp úr þvagi þegar vora tekur

Megn fíla myndast þegar eggin eru soðin. Þá er sagt að stræti Dongyang ilmi af þessu lostæti mánuðum saman,
Megn fíla myndast þegar eggin eru soðin. Þá er sagt að stræti Dongyang ilmi af þessu lostæti mánuðum saman, mynd/AP
Íbúar í kínversku borginni Dongyang fagna vorinu með heldur undarlegum hætti. Egg sem soðin eru upp úr þvagi ungra pilta eru nauðsynlegur liður í vorfögnuði borgarbúanna.

Götusalar fjölmenntu í grunnskóla Dongyang í dag. Þeir fylltu skálar og fötur af þvagi sem piltum skólans hafði verið skipað að safna saman yfir daginn.

Samkvæmt ævaforni hefð eru eggin soðin upp úr þvaginu í nokkrar klukkustundir. Skurnin er síðan brotin og eggin látin malla ögn lengur í vökvanum. Þvagið verður að koma frá piltum undir tíu ára aldri - ekki er vitað af hverju piltarnir mega ekki vera eldri en tíu ára.

Megn fíla myndast þegar eggin eru soðin. Þá er sagt að stræti Dongyang ilmi af þessu lostæti mánuðum saman.

„Þú færð ekki hitakast ef þú borðar þessi egg," sagið Ge Tahua í viðtali við Reuters fréttastofuna. Tahua er vinsæll götusali í Dongyang. „Ekkert er jafn heilsusamlegt og þessi yndislegu egg. Fjölskyldan mín borðar þau í öll mál."

Eggin eru gríðarlega vinsæl í Dongyang. Fólk á öllum aldri trúir því að hefðin hafi komið frá forfeðrum þeirra sem átu eggin til að forðast ýmsa heilsukvilla.

Ekki eru þó allir jafn hrifnir af eggjunum. Heilbrigðisyfirvöld í Kína segja að eggin séu hreint ekki heilnæm og hafa þau ítrekað varað borgarbúa Dongyang við því að borða þau.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×