Ólíðandi að upplýsingagjöf einkarekinna læknastofa sé óskýr Erla Hlynsdóttir skrifar 11. mars 2012 12:30 Guðbjartur Hannesson.
Velferðarráðherra segir ólíðandi að ekki sé skýrt hvaða upplýsingar einkareknar læknastofur gefi heilbrigðisyfirvöldum. Í framhaldi af þeim álitaefnum sem upp komu í tengslum við PIP-sílíkonpúðana, hefur ráðherra skipað starfshóp til að fara yfir einkarekstur í heilbrigðisgeiranum. Meðal álitaefna er hvort lýtalæknum ber skylda til að veita landlækni upplýsingar um þá sem hafa fengið sílíkonígræðslur. Lýtalæknar neituðu og vísuðu málinu til Persónuverndar. „Í framhaldi af þessari um ræðu með PIP púðana þá var ákveðið að stofna ráðgjafahóp til að fara í saumana á faglegum þáttum í starfsemi einkarekinna læknastofa og gera tillögur til úrbóta eftir því sem að þörf krefur. Þá er náttúrulega verið að horfa sérstaklega til þess að heilbrigðisyfirvöld í landinu hafa eftirlitskyldu, bæði með gæðum, þjónustu og framkvæmd," segir Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra. Telurðu að eftirlitinu hafi þarna verið ábótavant? „Það er uppi ágreiningur um það meðal annars hvaða upplýsingaskylda er á milli þessara aðila, hver er réttur landlæknis til að kalla eftir upplýsingum, og fleira í þeim dúr og það er náttúrulega algjörlega óviðunandi að það sé ekki skýrt að sá aðili sem á að hafa eftirlit geti kallað eftir gögnum, svo eitthvað sé nefnt." Þá þarf að skoða fleiri þætti, svo sem hvort greiðsluþátttaka ríkisins hafi áhrif á hvaða upplýsingar einkareknar stofur veita heilbrigðisyfirvöldum. „Ég held að það sé mjög mikilvægt að fara yfir regluverkið og skýra það þannig að það velkist enginn í vafa um hver sé réttur Landlæknis sem eftirlitsaðila fyrir hönd heilbrigðisyfirvalda. og hverjar skyldur læknastofanna séu," segir Guðbjartur. Í hópnum sitja Magnús Pétursson ríkissáttasemjari sem þar er verkefnastjóri, Garðar Garðarsson lögmaður, Guðmundur Sigurðsson lagaprófessor og Kristín Kalmarsdóttir endurskoðandi. Þau hafa þegar hist þrisvar og átt einn fund með ráðherra. Reiknað er með að hópurinn skili niðurstöðum sínum í maí.
Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Innlent Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Innlent Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Sjá meira