Erlent

Örlög Gingrich ráðast í vikunni

Örlög Newt Gingrich í prófkjörbaráttu Repúblikanaflokksins munu ráðast í vikunni. Þá verða haldin prófkjör í Alabama og Mississippi og ef Gingrich vinnur ekki í þeim báðum eru draumar hans um að verða næsta forsetaefni flokksins fyrir bí.

Nýjar skoðanakannanir sýna að Romney er með forystuna í Mississippi með 35% fylgi en bæði Gingrich og Santorum eru með 27% atkvæða hvor.

Gingrich á meiri möguleika á að vinna í Alabama en skoðanakannanir sýna að mjög mjótt er á mununum milli þessarar þriggja frambjóðenda í því ríki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×