Erlent

Undirbúa sig fyrir hefndaraðgerðir Talibana í Afganistan

Bandaríski herinn í Afganistan býr sig nú undir hefndaraðgerðir Talibana gegn sér eftir að liðþjálfi í bandaríska hernum brjálaðist og myrti 16 manns, þar á meðal níu börn, um helgina.

Talibanar hafa birt yfirlýsingu á vefsíðu sinni um að bandarískir hermenn séu réttdræpir hvar sem til þeirra næst og að þeirra sem liðþjálfinn myrti verði hefnt.

Barack Obama hringdi í Hamid Karzai forseta Afganistan í gærkvöldi og vottaði honum samúð sína vegna morðanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×