Innlent

Björgunarsveitir kallaðar út til leitar að týndum Pólverja

Björgunarsveitir voru kallaðar út í nótt til að leita að manni í bíl, sem virtist vera í vandræðum einhvernstaðar á norðvestanverðu landinu.

Hann vissi hinsvegar ekki hvar hann var og skildi ekki starfsmenn Neyðarlínunnar, og þeir ekki hann. Var því kallaður út pólskumælandi túlkur og smátt og smátt beindist leitin að leiðinni um Þröskulda, á milli Króksfjarðarness og Hólmavíkur, og fannst bíllinn þar, fastur í skafli.

Ekkert amaði að Pólverjanum, né farþega og samlanda hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×