Erlent

Að leiðarlokum komið í Rutgers-málinu

Dharun Ravi
Dharun Ravi mynd/AP
Örlög fyrrverandi nemanda við Rutgers háskólann í Bandaríkjunum liggja nú í höndum kviðdóms. Hinn tvítugi Dharun Ravi er sakaður um að hafa njósnað um samkynhneigðan herbergisfélaga sinn nokkrum dögum áður en hann svipti sig lífi.

Málið hefur vakið mikla athygli í Bandaríkjunum. Réttarhöldin hafa staðið yfir í 13 daga og hafa rúmlega 30 vitni verið kölluð til. Lögfræðingar hafa nú flutt lokaávörp sín og er málið nú í höndum kviðdóms.

Ákæruatriðin eru 15 talsins. Sakargiftirnar eru af ýmsum toga. Þar á meðal er Ravi sakaður um að hafa brotið á friðhelgi og að hafa framið hatursglæp. Ravi á yfir höfði sér tíu ára fangelsisdóm.

Tyler Clementimynd/AP
Í september árið 2010 njósnaði Ravi um herbergisfélaga sinn, Tyler Clementi. Ravi hafði komið fyrir vefmyndavél í herberginu og fylgdist með þegar Tyler fékk heimsókn frá öðrum manni.

Þremur dögum eftir atvikið svipti Tyler sig lífi með því að stökkva fram af George Washington brúnni í New York.

„Þetta er ekki einfaldur misskilningur," sagði Julia McClure, saksóknari. „Gjörðum sakborningsins var ætlað að særa, þær voru meinfýsnar og þær voru glæpsamlegar."

Verjandi Ravis sagði að skjólstæðingur sinn hefði aldrei gerst sekur um hatur gagnvart samkynhneigðum. „Ef það er illska í hjarta Ravis - illska gagnvart samkynhneigðum, gagnvart Tyler - hvar eru sönnunargögnin, hvar eru smáskilaboðin, tölvupóstarnir?" Spurði verjandinn. „Það er ekkert til staðar."

„Tyler var fámáll piltur, hann var feiminn," sagði McClure. „Og hann kemst að því að einhver hafði fylgst sem nánum athöfnum sínum - það er fátt jafn skelfilegt og sú tilfinning."

Kviðdómur fundar nú og er búist við niðurstöðu á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×