Ekkert bólar á endurútreikningu gengislána 14. mars 2012 18:30
Talið er að enn þurfi að koma fjórtán gengislánamálum í gegnum dómstóla áður en hægt verður að reka smiðshöggið á endurútreikninga gengislána. Ekkert bólar á endurútreikningi láns hjóna sem Hæstiréttur dæmdi fyrir mánuði að mætti ekki setja á afturvirka vexti. Fyrir fjórum vikum, dæmdi Hæstiréttur að Frjálsa fjárfestingarbankanum hefði verið óheimilt að reikna afturvirka Seðlabankavexti á gengistryggt húsnæðislán hjóna í Vesturbænum. Þar með hófst þriðja óvissutímabilið hjá þeim sem tóku gengistryggð lán á sínum tíma. Fréttastofa kannaði í dag stöðu mála. Fyrsta skrefið til að létta óvissunni var stigið í síðustu viku þegar Samkeppniseftirlitið heimilaði bönkunum að setjast niður með fulltrúum skuldara - og hafa með sér samráð um viðbrögð við dóminum. Hópurinn hefur fundað tvisvar. Hins vegar er ljóst að bankarnir hyggjast ekki leggjast í viðamikla endurútreikninga enn á ný fyrr en þau dómsmál sem þegar eru komin í ferli eru til lykta leidd. Samkvæmt heimildum fréttastofu telja bankarnir að fjórtán mál þurfi að fara í gegnum dómskerfið áður en hægt verður að leysa úr öllum álitamálum. Þar af eru 2 mál einstaklinga gegn Lýsingu vegna bílalána - og tólf mál vegna fyrirtækja. Slík málaferli geta tekið marga mánuði - nema frumvarp um flýtimeðferð komist í gegnum þingið. Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, segir frumvarpið nú til umsagnar hjá dómstólaráði - verði hún jákvæð telur hann að flýtimeðferðin geti orðið að lögum strax eftir helgi. Hvernig sem fer - virðist nokkuð ljóst að gengislánaskuldarar geta ekki vænst þess að fá endanlega vitneskju um hvað þeir skulda fyrir næstu mánaðmót.
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Innlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Fleiri fréttir Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Sjá meira