Innlent

Fimm afbrotamenn kærðu gæsluvarðhald til Hæstaréttar

Fimm af sex afbrotamönnum, sem voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í gær, hafa kært úrskurðina til Hæstaréttar.

Mennirnir hafa allir gerst brotlegir við lög áður, en mismikið. 23 menn voru fyrir í gæsluvarðhaldi vegna annara mála og eru öll gæsluvarðhaldspláss nú full og gott betur. Slík staða er afar fátíð og er þetta líklega mesti fjöldi sem sætt hefur gæsluvarðhaldi í einu til þessa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×