Erlent

Fyrirsæta sökuð um að hafa stjórnað glæpahring

Farrow var handsömuð í Queensland í gær.
Farrow var handsömuð í Queensland í gær. mynd/AP
Simone Farrow, fyrrverandi baðfatamódel, var handsömuð í Ástralíu í gær. Hún flúði úr landi eftir að hún handtekin í Hollywood árið 2009. Saksóknari segir að hún sé heilinn á bak við alþjóðlegan glæpahring.

Hin 37 ára gamla Simone Farrow er sökuð um að hafa stjórnað glæpahring úr íbúð sinni í Hollywood og að hafa sent metamfetamín um allan heim. Hún hafði 19 dulnefni og notaðist við alþjóðlega sendingarþjónustur á borð við FedEx.

Farrow var eitt sinn heimsfræg fyrirsæta. Hún var andlit baðfatalínu Ed Hardy tískuhússins. Hún hafði einnig setið fyrir í Penthouse og öðrum tímaritum. Hún var þrisvar sinnum valin ein fallegasta kona veraldar af tímaritinu FHM.

Farrow flúði eftir að greitt tryggingu í Bandaríkjunum. Hún var síðan handtekin í Queensland í Ástralíu í gær.

„Ég flúði af því að einhver var að reyna að drepa mig," sagði Farrow í viðtali við Sunday Telegraph. „Ég hef átt í ástarsamböndum við marga menn úr undirheimunum og ég er fullviss um þeir eru reyna að ráða mig af dögum."

Farrow verður dregin fyrir dómstóla í Bandaríkjunum og á yfir höfði sér margra ára fangelsi, verði hún sakfelld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×