Erlent

Þrettán sinnum brotist inn hjá NASA

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Í fyrra var brotist þrettán sinnum inn í tölvukerfi NASA.
Í fyrra var brotist þrettán sinnum inn í tölvukerfi NASA. mynd/ GETTY
Þrettán sinnum var brotist inn í tölvukerfi Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna, NASA, á síðasta ári. Þetta sagði Paul Martin, fulltrúi NASA, þegar að hann gaf skýrslu fyrir bandarískri þingnefnd nú í vikunni.

Þessi atvik voru af margvíslegum toga. Um var að ræða einstaklinga sem voru að prófa hæfni sína í tölvuinnbrotum og allt upp í vel skipulögð glæpasamtök sem hugðust ná ágóða af tölvuinnbrotunum," sagði Paul Martin fyrir þingnefndinni á miðvikudag.

Martin sagði að í sumum tilfellum hefðu tölvuinnbrotin haft áhrif á þúsundir tölva hjá NASA og orsakað það að aðgerðir stofnunarinnar hafi farið úr skorðum. Þá hafi innbrotin einnig leitt til þess að verðmætum gögnum hafi verið stolið og hafi það í sumum tilfellum kostað NASA milljónir dala.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×