Erlent

Strandgestir björguðu höfrungum

Strandgestir í Brasilíu komu 20 höfrungum til bjargar þegar þeir villtust af leið og enduðu upp í fjöru við Rio de Janeiro í gær.

Höfrungarnir voru hætt komnir þegar þeir nálguðust ströndina. Á myndbandi sem náðist af atvikinu má sjá hvernig höfrungarnir sveifla sporðum sínum og reyna eftir mesta megni að komast úr fjöruborðinu.

Nokkrir strandgestir komu síðan höfrungunum til bjargar. Þeir drógu höfrunguna úr fjörunni á sporðunum. Það var síðan mikið fagnað þegar verkefnið var klárað.

Atvikið átti sér stað við Arraial do Cabo baðströndina í Rio de Janeiro í gær.

Hægt er að sjá myndbandið hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×