Erlent

Bardagamaður réðst gegn ræningjum með spjóti

Neil Ashton er afar sannfærandi í hlutverki.
Neil Ashton er afar sannfærandi í hlutverki. mynd/mmedia
Neil Ashton tók á móti innbrotsþjófum með tveggja metra spjóti og margra ára reynslu af klassískum skylmingum þegar þeir hugðust fara ránshendi um krá hans í Rochdale á Bretlandi.

Ashton, sem er 35 ára gamall, svaf værum svefni þegar þjófarnir sóttu að virki hans. Hann rumskaði þegar ræningjarnir brutu sér leið í gegnum bakdyr knæpunnar.

Ashton rekur kránna Sandbrook í Rochdale. Hann býr fyrir ofan barinn og var því fljótur að mæta ræningjunum.

Hann hljóp beint í fangið á ránsmönnunum og tæklaði annan þeirra. Ashton tók síðan eftir spjótinu sínu sem hékk fyrir ofan barborðið. Hann greip í spjótið og lamdi ræningjana með því.

„Ég var svo yfirfullur af adrenalíni að ég hefði getað hlaupið maraþon," sagði Ashton.

Ræningjarnir áttu sig fljótt á að orrustan var töpuð. Þeir forðuðu sér og Ashton stóð eftir með atgeirinn í hendi.

Lögreglan var kölluð til. Ashton útskýrði fyrir þeim að hann hafi mikið dálæti á hlutverkaleikjum. Hann hittir félaga sína reglulega og endurskapa þeir fornfrægar orrustur. Ashton er vanalega í hlutverki bardagamanns.

Ashton og vinir hans endurskapa einnig orrustur úr tölvuleiknum Maelstrom.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×