Erlent

Forseti Afganistan fordæmir sjálfsmorðsárás

Frá vettvangi í Jalalabad.
Frá vettvangi í Jalalabad. mynd/AFP
Hamid Karzai, forseti Afganistan, fordæmir sjálfsmorðsárásina sem átti sér stað í austurhluta landsins í dag.

Níu létust í sprengingunni og 12 særðust.

Árásin átti sér stað við herflugvöll NATO í borginni Jalalabad. Samkvæmt yfirmanni herafla NATO urðu engin slys á hermönnum.

Talibanar hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni en hún var gerð í hefndarskyni eftir að bandarískir hermenn brenndu nokkur eintök af Kóraninum í síðustu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×