Gerir ekki athugasemdir við setu Benedikts í dómnum Jón Hákon Halldórsson skrifar 14. febrúar 2012 11:17 Sigríður Friðjónsdóttir
Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari hefur ekki gert athugasemdir við setu Benedikts Bogasonar í Hæstarétti í máli ákæruvaldsins gegn Baldri Guðlaugssyni fyrrverandi ráðuneytisstjóra. Þetta segir Sigríður í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis. Benedikt og Karl Axelsson, verjandi Baldurs, eru vinir og DV greindi frá því um daginn að þeir hefðu sést opinberlega saman eftir að málið gegn Baldri var dómtekið í Hæstarétti. Baldur hefur, sem kunnugt er, verið dæmdur í tveggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir innherjasvik. Hann áfrýjaði dómnum til Hæstaréttar og er von á dómi í því máli innan skamms. Fimm manna dómur dæmir í máli Baldurs og er Benedikt Bogason einn dómaranna. Fréttir af vináttu þeirra Karls Axelssonar og Baldurs hafa vakið athygli en þeir munu hafa brugðið sér saman í bíó að sjá Contraband eftir að málflutningur hafði farið fram í málinu og það verið dómtekið. Rétt er að taka það fram að ekkert i lögum um Hæstarétt bannar Benedikt að sitja í dómnum en samkvæmt lögum um Hæstarétt er dómari einungis vanhæfur ef hann er skyldur málflutningsmanni. Ekkert segir til um að málflutningsmaður og dómari megi ekki vera vinir. Fram hefur komið að sex hæstaréttardómarar töldu sig ekki geta dæmt í málinu vegna vensla við Baldur sjálfan.
Mest lesið „Stundin sem við höfum óttast er runnin upp“ Erlent Tók smá snúning en aftur kominn á svipaðar slóðir Innlent Þrjú ár fyrir að svíkja út 156 milljónir og leggja inn á fjölskylduna Innlent Háhyrning rak á land í Grafarvogi Innlent Tilfinningaþrungin ræða á þingi SÞ: „Stolt, fötluð, og óendanlega þakklát“ Innlent „Hjólið fellur á flugi, auðvitað er það alvarlegt“ Innlent Íslendingur í Graz: „Brotna niður við að hugsa um þessa foreldra“ Erlent Fannst látinn í hlíðum Esjunnar Innlent Hnattræn hlýnun gerði hitabylgjuna í maí hlýrri og mun líklegri en ella Innlent Musk sér eftir sumum færslunum sem hann birti um Trump Erlent Fleiri fréttir Aðalmeðferð hafin í máli Sigurðar Fannars Tók smá snúning en aftur kominn á svipaðar slóðir Neitaði að borga fyrir leigubílinn og braut rúðu í lögreglubíl Hnattræn hlýnun gerði hitabylgjuna í maí hlýrri og mun líklegri en ella Háhyrning rak á land í Grafarvogi Reisa tuttugu bekki til minningar um Bryndísi Klöru Tilfinningaþrungin ræða á þingi SÞ: „Stolt, fötluð, og óendanlega þakklát“ „Hjólið fellur á flugi, auðvitað er það alvarlegt“ Þrjú ár fyrir að svíkja út 156 milljónir og leggja inn á fjölskylduna Endósamtökin lýsa yfir þungum áhyggjum Grunur um að nefhjól úr flugvél hafi lent á Austurvelli „Fráleitt“ að halda að ríkisstjórnin bakki með veiðigjaldafrumvarpið Fannst látinn í hlíðum Esjunnar „Ert eiginlega hættur að finna lögreglumenn á samfélagsmiðlum“ Maðurinn á Esjunni er fundinn Ágúst Ólafur aðstoðar borgarstjóra Eldur í bílskúr á Álftanesi Nafn mannsins sem drukknaði við Örfirisey Persónuvernd lagði Landlækni en sektin milduð Rannsókn banaslyss í Brúará miði vel Guðrún spyr um há laun æðstu ráðamanna Fullyrðing um slaufun verknámsskóla „kolröng“ Rafmagn komið á aftur VG skoðar samstarf við aðra flokka fyrir kosningar næsta vor Grunur um íkveikju á Hjarðarhaga Mættu heim til lögreglumanns og ógnuðu honum með hníf Orri Harðarson er allur Látinn eftir líkamsárás en árásarmaðurinn gengur laus „Þetta er glórulaust rugl í ráðherra“ Tilkynningum um nauðganir fjölgaði milli ára Sjá meira