Orkustefna fyrir Ísland lögð fram 14. febrúar 2012 14:57 Oddný G. Harðardóttir verður nýr fjármálaráðherra. mynd úr safni
Oddný G Harðardóttir, iðnaðarráðherra lagði í dag fram á Alþingi skýrslu um heildstæða Orkustefnu fyrir Ísland en í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá því í maí 2009 er kveðið á um að mótuð verði stefna þar um. Í tilkynningu frá iðnaðarráðuneyti segir að orkustefnunni sé ætlað að vera grundvöllur og viðmið ákvarðana er varða orkumál og skulu ákvarðanir stjórnvalda jafnan vera í sem bestu samræmi við stefnuna. Skýrslan er tillaga stýrihóps sem iðnaðarráðherra skipaði árið 2009 og er um nokkurt nýmæli að ræða að skýrsla sem þessi sé lögð fyrir þingið til umræðu áður en ráðherra gefur út endanlega stefnu. Í tilkynningunni segir að kjarninn í stefnunni sé að orkubúskap Íslands verði hagað með sjálfbærum hætti, samfélaginu og almenningi til hagsbóta". Er hér vísað í hinar þrjár stoðir sjálfbærni, þ.e. verndun umhverfis, samfélagslega sátt, og hagræna sjálfbærni til lengri tíma litið." Þá segir að markmiðin séu eftirfarandi: Við nýtingu orkuauðlinda verði borin virðing fyrir umhverfi, náttúru og sérkennum landsins. Orkunýting sé valin af kostgæfni með hámarks arðsemi að leiðarljósi. Mikilvægt er að orkuþörf almennings og almenns atvinnulífs sé tryggð með öruggum hætti til lengri og skemmri tíma. Þegar er búið að virkja um helming af nýtanlegri raforkugetu í vatnsafli og jarðvarma og því mikilvægt að frekari nýting sé valin af kostgæfni með hámarks arðsemi og langtímahagsmuni heildarinnar að leiðarljósi. Þjóðin njóti arðs af sameiginlegum orkuauðlindum. Brýnt er að mótuð verði stefna um skattlagningu orkuauðlinda og unninnar orku sem er ein af skilaleiðum arðs til þjóðarinnar. Komið verði á fót sérstökum auðlindasjóði. Sjóðurinn bjóði út nýtingarsamninga til tiltekins hóflegs tíma í senn, t.d. 25-30 ára eða eftir eðli hvers virkjunarkosts að teknu tilliti til upphafsfjárfestingar og afskriftatíma. Þjóðhagsleg framlegð verði hámörkuð. Ekki skal ganga á framlegð eða arðsemi orkuvinnslu og -sölu vegna byggða- eða atvinnusjónarmiða í héraði. Markmiðum á þeim sviðum verði náð með öðrum og almennari hætti, t.d. með hlutdeild nærsamfélags í auðlindarentu. Dregið verði úr notkun jarðefnaeldsneytis: Íslendingar flytja inn jarðefnaeldsneyti fyrir 44 milljarða króna í gjaldeyri á ári hverju og er mikilvægt að leitað sé leiða til að draga úr olíunotkun. Helstu ástæður eru orkuöryggissjónarmið, skuldbindingar í loftslagsmálum og skuldbindingar um notkun endurnýjanlegra orkugjafa skv. tilskipunum EES. Í stýrihópnum sátu þau Vilhjálmur Þorsteinsson, formaður, Bergur Sigurðsson, Brynhildur Davíðsdóttir, Guðni A. Jóhannesson, Guðrún Jóna Jónsdóttir, Gunnar Tryggvason og Salvör Jónsdóttir. Með hópnum starfaði Helga Barðadóttir sérfræðingur hjá iðnaðarráðuneytinu.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira