Skutu þrjá mótmælendur til bana í Egyptalandi Hugrún Halldórsdóttir skrifar 3. febrúar 2012 12:10
Egypska lögreglan skaut þrjá til bana í mótmælum sem haldin voru víðsvegar um Egyptaland í gær og nótt í kjölfar afdrifaríks fótboltaleiks þar í landi. Fjöldi liggur særður eftir átök við lögreglu. Mótmælin hófust í kjölfar þess að sjötíu og fjórir týndu lífinu í óeirðum sem brutust út eftir fótboltaleik í egypsku borginni Port Said á miðvikudag. Lögreglan hefur verið harðlega gagnrýnt fyrir að bregðast ekki rétt við og hefur hún jafnframt verið sökuð um að hafa stofnað til slagsmála milli stuðningsmanna liðanna. Þúsundir umkringdu skrifstofur innanríkisráðuneytisins í Kaíró í nótt en þar kom til átaka milli mótmælenda og lögreglumanna sem beittu táragasi gegn mannfjöldanum sem grýtti steinum á móti. Um fjögurhundruð þurftu á læknisaðstoð að halda í kjölfarið. Í borginni Suez féllu tveir þegar lögreglan hóf skothríð á hóp þrjúþúsund mótmælenda sem hafði safnast saman fyrir höfuðstöðvar lögreglunnar eftir að þær fregnir bárust að einn þeirra sem féll í óeirðunum á íþróttaleikvanginum væri frá borginni. Það voru liðin Al Ahly frá Kaíró og Al Masry frá borginni Suez sem öttu kappi á miðvikudaginn en að leik loknum stormuðu vopnaðir stuðningsmenn síðarnefnda liðsins inn á völlinn og veittust að liðsmönnum og stuðningsmönnum Al Ahly með fyrrgreindum afleiðingum. Mótmælin eru sögð endurspegla óánægju landsmanna með störf lögreglu og herforingjaráðsins sem hefur farið með völd í landinu frá falli Hosni Mubaraks, forseta landsins, í febrúar á síðasta ári.
Mest lesið Dr. Bjarni er látinn Innlent Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Innlent Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Erlent Karl Wernersson ákærður fyrir að leyna verðmætum listaverkum fyrir skiptastjóra Innlent Fær um 90 milljónir fyrir verkið sem hópur Eyjamanna vill ekki sjá Innlent Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Innlent Eyjamenn eigi Heimaklett og engin innistæða fyrir kröfum ríkisins Innlent Stór skjálfti rétt hjá Grímsey Innlent Fleiri fréttir Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Dr. Bjarni er látinn Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Lögreglan á Austurlandi tók þátt í stórri alþjóðlegri lögregluaðgerð Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Daði ekki í stöðu til að meta hvaða fundir eru mikilvægari en aðrir Eyjamenn eigi Heimaklett og engin innistæða fyrir kröfum ríkisins Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Ógnaði ungmennum með hníf Karl Wernersson ákærður fyrir að leyna verðmætum listaverkum fyrir skiptastjóra Martraðakennd leigubílaferð og óvelkomin sána Þorbjörg um sérstakan saksóknara: „Gerum þennan tíma upp“ Hrærður yfir áhuga stjórnarandstöðunnar en hafði annað að gera Fær um 90 milljónir fyrir verkið sem hópur Eyjamanna vill ekki sjá Fimmtán ára piltur ók undan lögreglu um allt höfuðborgarsvæðið Reyna enn einu sinni að ræða framtíð MÍR á aðalfundi Leggja til róttækar breytingar á byggingaeftirliti Á von á veiðigjaldamálinu í sína nefnd og þingstörfum fram í júlí Segir nýtt að konan sé tekin á beinið „Ofgnótt af vannýttum stæðum“ Veiðigjöldin afgreidd í nefnd og njósnarar buðu Sjóvá þjónustu sína Bein útsending: Aðgerðir til að bregðast við rakaskemmdum og öðrum byggingagöllum Mikil hætta meðan maður reyndi að flýja lögreglu í miðbænum „Þjóðin á ekki fiskinn í sjónum, fiskurinn á sig sjálfur í sjónum“ Langflestir telja stríð og átök það sem helst þjakar heiminn „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Kölluð út vegna viðskiptavinar með æsing Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Lalli Johns er látinn Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Sjá meira
Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Innlent
Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Innlent