Vilja skattaívilnanir fyrir þá sem spara fyrir íbúðarkaupum Jón Hákon Halldórsson skrifar 3. febrúar 2012 20:07 Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, er fyrsti flutningsmaður tillögunnar.
Níu þingmenn á Alþingi lögðu fram frumvarp í dag þar sem gert er ráð fyrir sérstökum skattívilnunum til handa þeim sem eru að spara vegna húsnæðisöflunar. Frumvarpið er hugsað til viðbótar öðrum opinberum úrræðum sem auðvelda eiga fólki að eignast húsnæði, til dæmis vaxtabótakerfi og Íbúðalánasjóði. Í frumvarpinu er lagt til að reglubundinn sparnaður til húsnæðisöflunar sem fólk stofnar til fyrir 34 ára aldur í formi samningsbundinna innlána hjá viðskiptabönkum og sparisjóðum veiti reikningseiganda skattafslátt innan vissra marka. Sparnaðurinn þarf að lágmarki að vera bundinn í tvö ár og viðkomandi sýna með óyggjandi hætti fram á öflun íbúðarhúsnæðis til eigin nota, þar með taliö búseturéttar, eða að hafin sé bygging eða verulegar endurbætur slíks húsnæðis. Í greinargerð með frumvarpinu segir að svipað átak hafi verið gert með lögum árið 1985 um húsnæðissparnaðarreikninga. Þau séu núna úr gildi fallin. Það er Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, sem er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins en ásamt henni standa að frumvarpinu þingmennirnir Lilja Mósesdóttir, Atli Gíslason, Siv Friðleifsdóttir, Björgvin G. Sigurðsson, Ólína Þorvarðardóttir, Skúli Helgason, Jónína Rós Guðmundsdóttir, Lúðvík Geirsson, Lilja Rafney Magnúsdóttir og Auður Lilja Erlingsdóttir.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira