Foreldrar Brekkuskóla æfir vegna Snorra í Betel 9. febrúar 2012 10:34 Snorri er vægast sagt umdeildur í Brekkuskóla.
Foreldrar Brekkuskóla á Akureyri eru æfir vegna bloggfærslu Snorra Óskarssonar, oft kenndur við Betelsöfnuðinn og kennari við skólann, en þar leggst hann harkalega gegn samkynhneigð og sagði slíkar kenndir synd og að laun syndarinnar væri dauði. Í vikublaðinu Akureyri kemur fram á forsíðu þess að foreldrar nemanda Brekkuskóla séu æfir yfir því sem þau telja fordóma og mannhatur Snorra og segist blaðið ennfremur hafa heimildir fyrir því að foreldrar krefjist þess að honum verði vikið frá störfum. Þannig á málefni Snorra að hafa verið rætt sérstaklega á fundi skólanefndar Brekkuskóla síðasta mánudag samkvæmt vikublaðinu Akureyri. Málið var merkt sem trúnaðarmál og bar yfirskriftina: Hatursáróður. Þegar vikublaðið Akureyri ræddi við stjórnarmanninn Loga Má Einarsson, sem einnig á barn í skólanum, og spurði hvort málefni Snorra hefði verið rætt á fundinum, vildi Logi ekki staðfesta það, enda trúnaður sem gildir á slíkum fundum. Hann svaraði því hinsvegar til að hann hefði séð skrif Snorra og þætti þau sorgleg og grafalvarlegt mál að einstaklingur sem hefur það að atvinnu að uppfræða börn og unglinga - og eigi meðal annars að vinna gegn fordómum - skuli ala á jafnmiklu mannhatri og fordómum og finna má í skrifum hans. Ekki náðist í skólastjóra Brekkuskóla, Jóhönnu Maríu Agnarsdóttur, né aðstoðarskólastjórann, Bergþóru Þórhallsdóttur, og fengust þau skilaboð að þær yrðu ekki til viðtals í dag.
Mest lesið „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Innlent Segir nýtt að konan sé tekin á beinið Innlent Fimmtán ára piltur ók undan lögreglu um allt höfuðborgarsvæðið Innlent „Þjóðin á ekki fiskinn í sjónum, fiskurinn á sig sjálfur í sjónum“ Innlent Fær um 90 milljónir fyrir verkið sem hópur Eyjamanna vill ekki sjá Innlent Lalli Johns er látinn Innlent Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Erlent Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli Erlent Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Erlent Fleiri fréttir Eyjamenn eigi Heimaklett og engin innistæða fyrir kröfum ríkisins Óttast að lítið þurfi til svo bíllinn springi í loft upp Ógnaði ungmennum með hníf Karl Wernersson ákærður fyrir að leyna verðmætum listaverkum fyrir skiptastjóra Martraðakennd leigubílaferð og óvelkomin sána Þorbjörg um sérstakan saksóknara: „Gerum þennan tíma upp“ Hrærður yfir áhuga stjórnarandstöðunnar en hafði annað að gera Fær um 90 milljónir fyrir verkið sem hópur Eyjamanna vill ekki sjá Fimmtán ára piltur ók undan lögreglu um allt höfuðborgarsvæðið Reyna enn einu sinni að ræða framtíð MÍR á aðalfundi Leggja til róttækar breytingar á byggingaeftirliti Á von á veiðigjaldamálinu í sína nefnd og þingstörfum fram í júlí Segir nýtt að konan sé tekin á beinið „Ofgnótt af vannýttum stæðum“ Veiðigjöldin afgreidd í nefnd og njósnarar buðu Sjóvá þjónustu sína Bein útsending: Aðgerðir til að bregðast við rakaskemmdum og öðrum byggingagöllum Mikil hætta meðan maður reyndi að flýja lögreglu í miðbænum „Þjóðin á ekki fiskinn í sjónum, fiskurinn á sig sjálfur í sjónum“ Langflestir telja stríð og átök það sem helst þjakar heiminn „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Kölluð út vegna viðskiptavinar með æsing Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Lalli Johns er látinn Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Aðgerðir gegn Temu og Shein, hraðbanki í hættu og þreyttir hlaupagarpar í beinni „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Hækka þurfi veiðigjald í skrefum Sjá meira