Innlent

Forræðismál yfir Ellu Dís heldur áfram - bannað að ræða við fjölmiðla

Rögnu Erlendsdóttur, móður Ellu Dísar, hefur verið meina að ræða við fjölmiðla að hennar sögn.
Rögnu Erlendsdóttur, móður Ellu Dísar, hefur verið meina að ræða við fjölmiðla að hennar sögn.
Rögnu Erlendsdóttur, móðir Ellu Dísar, hefur verið meinað að ræða mál sín við fjölmiðla samkvæmt færslu sem hún skrifaði á Facebook síðu sína.

Ragna mætti fyrir dómstól í dag í Bretlandi, þar sem hún er búsett núna. Fréttastofan greindi frá því í síðustu viku að barnaverndaryfirvöld í Bretlandi vilja svipta Rögnu forræði yfir dóttur sinni.

Ragna fór fyrir rétt í London um miðja síðustu viku. Hún hafði þá mætt tvívegis fyrir dóm í Bretlandi vegna forræðisdeilu sem bresk og íslensk yfirvöld hafa höfðað gegn henni. Málinu var vísað til Royal High Court og var það tekið fyrir í dag.

Samkvæmt færslu Rögnu var niðurstaðan sú að réttarhöldin halda áfram næstu sex til níu mánuðina. Ekki hefur náðst í Rögnu vegna málsins.


Tengdar fréttir

Bresk barnaverndaryfirvöld vilja svipta móður Ellu Dísar forræði

Barnaverndaryfirvöld í Bretlandi vilja svipta Rögnu Erlendsdóttur, móður Ellu Dísar, forræði yfir dóttur sinni. Ragna fór fyrir rétt í London, þar sem hún er búsett, í gær. Hún segir í viðtali við DV að hún hafi tvívegis mætt fyrir dóm og nú hafi málinu verið vísað til Royal High Court og þar verði málið tekið fyrir næsta þriðjudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×