Innlent

Töluvert tjón í eldsvoða á Bifröst

Engan sakaði er töluvert tjón varð þegar eldur kviknaði í mannlausri íbúð í nemendagarði með tíu íbúðum að Bifröst upp úr miðnætti.

Snarráðir heimamenn, sem hafa hlotið grunnþjálfun í slökkvistörfum, hófu þegar aðgerðir á meðan beðið var liðsauka slökkviliðs frá Borgarnesi, Reykholti og Hvanneyri. Kom það í veg fyrir að eldurinn, sem logaði í íbúðinni, næði útbreiðslu í aðrar íbúðir hússins og til húsa í næsta nágrenni.

Tæpa klukkusutnd tók að slökkva eldinn, en allt innanstokks mun vera ónýtt. Lögreglan í Borgarnesi rannsakar eldsupptök.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×