Innlent

Húsráðandi slapp ómeiddur úr eldsvoða

Húsráðandi slapp ómeiddur út þegar eldur blossaði upp í íbúð hans í fjölbýlishúsi að Grensásvegi 60 í Reykjavík á áttunda tímanum í gærkvöldi.

Allt slökkilið á vakt á höfuðborgarsvæðinu var sent á vettvang, eins og ávalt er gert þegar eldur kviknar í fjölbýlishúsi. Reykkafarar fóru inn og slökktu eldinn, sem logaði í eldhúsinu.

Miklar skemmdir urðu af reyk í íbúðinni og reykur barst farm á stigagang og lítilsháttar inn í aðrar íbúðir. eldurinn viðrist hafa kviknað út frá eldamennsku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×