Stríðsbrúðurin: Dóttir Larrys og ættleidd systir hittust á kaffihúsi 2. janúar 2012 10:20 Ragna Esther og Larry Gavin þegar þau voru enn hamingjusöm.
Patti Allen og Melissa Gavin hittust á dögunum á kaffihúsi. Það var ekki fyrr en fyrir skömmu sem þær komust að tilvist hvorrar annarrar. Faðir Melissu er Larry Gavin, sem var giftur íslensku konunni, Rögnu Esther Sigurðardóttir, sem hvarf á dularfullan hátt árið 1951. Málið hefur vakið mikla athygli hér á landi eftir að fréttastofa RÚV greindi frá því síðasta sumar. Þá hefur bandaríska blaðið The Oregonian fjallað af krafti um málið og leiddi nú síðast til þess að afkomendur Larrys komust að því að hann hefði gift sig á ný. Fjölskylda Rögnu Estherar hér á landi hefur ávallt leitað hennar frá því hún hvarf í byrjun sjötta áratugarins á síðustu öld. Þau komust að því að börn Rögnu Estherar voru ættleidd. Hún átti tvö börn, Debru og Robert. Eins og greint hefur verið frá barðist Ragna Esther fyrir börnum sínum í réttarkerfinu í Bandaríkjunum. Hún tapaði að lokum og voru börnin þá ættleidd. Debru var hinsvegar skilað aftur af fjölskyldunni sem ættleiddi hana, þar sem hún virðist hafa verið með væga þroskahömlun. Hún lést árið 1999. Sama ár og Ragna tapaði forræðismálinu hvarf hún sporlaust. Sumir telja að Larry sé ábyrgur fyrir hvarfi hennar, en hann misþyrmdi henni með hrottalegum hætti þegar þau voru gift. Robert, sonur Rögnu, er enn á lífi og er fjölskylda Rögnu Estherar vongóð um að fá að hitta hann. Patti er ættleidd systir þeirra tveggja. Hún hitti Melissu til þess að sýna henni myndir af bróður sínum og Debru. Á kaffihúsinu ræddu konurnar íslensku fjölskylduna hennar Rögnu Estherar. „Fjölskyldan á Íslandi er forgangsatriði hjá mér," sagði Melissa við Patti og bætti við að hún óskaði þess eins að þau gætu fundið hamingjuna. Patti tók undir orð Melissu og sagðist vilja gera þeim kleyft að gera þetta dularfulla mál upp. Hægt er að nálgast umfjöllun The Oregonian hér
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Fleiri fréttir Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Sjá meira