Landsbankinn biður bæjarstjóra Akureyrar velvirðingar 5. janúar 2012 13:37 Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi Landsbankans. „
Þetta var yfirsjón af okkar hálfu og við höfum beðist velvirðingar á því," segir Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi Landsbankans, en bæjarstjóri Akureyrar, Eiríkur Björn Björgvinsson, var afar ósáttur við að hafa birst í sérstakri áramótaauglýsingu sem birtist í fjölmiðlum um hátíðirnar. Hann birtist stuttlega í auglýsingunn þar sem hann var að stýra fundi á vegum Landsbankans í Hofi á Akureyri á síðasta ári. Það kom því Eiríki á óvart þegar hann sá sig sjálfan í auglýsingunni, enda hafði hann aldrei gefið samþykki sitt fyrir birtingunni. Kristján segir bankann hafa fengið kurteisa ábendingu frá bæjarstjóranum og hann hafi umsvifalaust verið beðinn afsökunar. Þá er búið að fjarlægja auglýsinguna af vef Landsbankans. Auglýsingin sjálf hafði „stuttan líftíma" eins og Kristján orðar það. Enda auglýsingin eingöngu ætluð til sýninga í kringum áramótin. Því mun hún ekki birtast í fjölmiðlum aftur óbreytt. Kristján segir málinu lokið af hálfu bankans.
Tengdar fréttir Auglýsing Landsbankans hugsanlega brotleg við siðareglur Bæjarstjóri Akureyrar, Eiríkur Björn Björgvinsson, segir það forkastanlegt að hann skuli koma fyrir í sjónvarpsauglýsingu Landsbankans. Hann segir í viðtali við blaðið Akureyri Vikublað að hann hafi komið fyrir í auglýsingu bankans, sem var sýnd yfir allar hátíðarnar, en myndskeiðið var tekið upp þegar hann var fundarstjóri á kynningarfundi á vegum bankans fyrir nokkru. 5. janúar 2012 12:17 Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Erlent Fleiri fréttir Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Sjá meira
Auglýsing Landsbankans hugsanlega brotleg við siðareglur Bæjarstjóri Akureyrar, Eiríkur Björn Björgvinsson, segir það forkastanlegt að hann skuli koma fyrir í sjónvarpsauglýsingu Landsbankans. Hann segir í viðtali við blaðið Akureyri Vikublað að hann hafi komið fyrir í auglýsingu bankans, sem var sýnd yfir allar hátíðarnar, en myndskeiðið var tekið upp þegar hann var fundarstjóri á kynningarfundi á vegum bankans fyrir nokkru. 5. janúar 2012 12:17