Fimm milljónir í umhverfisstyrki 9. janúar 2012 17:48 Landsbankinn veitti 17 umhverfisstyrki að þessu sinni mynd/LÍ
Landsbankinn veitti í dag 5 milljónir króna í umhverfisstyrki úr Samfélagssjóði bankans en að þessu sinni voru veittir 17 styrkir. Ríflega 130 umsóknir bárust. Í tilkynningu segir að styrkjunum er ætlað að styðja við verkefni á sviði umhverfismála og náttúruverndar. Styrkirnir byggja á stefnu bankans um samfélagslega ábyrgð hans og skyldur. „Dómnefnd um úthlutun umhverfisstyrkja að þessu sinni var skipuð þeim Dr. Brynhildi Davíðsdóttur, dósent í Umhverfis- og auðlindafræðum við HÍ, Dr. Þorvarði Árnasyni, umhverfis- og náttúrufræðingi og forstöðumanni Rannsóknarseturs HÍ á Hornafirði, Finni Sveinssyni sérfræðingi í samfélagslegri ábyrgð hjá Landsbankanum og Dr. Guðrúnu Pétursdóttur, forstöðumanni stofnunar Sæmundar Fróða um sjálfbæra þróun við HÍ, en hún var jafnframt formaður dómnefndar." Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans segir í tilkynningu að það sé stefna bankans að vinna í sátt við umhverfið. „... og umhverfisstyrkirnir eru leið bankans til að verðlauna góðar hugmyndir og leggja þeim lið sem vilja gera vel í umhverfismálum og náttúruvernd. Innan bankans höfum við hrint úr vör verkefnum í þessa veru, m.a. höfum við hvatt starfsmenn að skrifa undir samgöngusamning og ferðast á vistvænan máta til og frá vinnu. Það hefur þegar skilað góðum árangri. Við höfum sömuleiðis markvisst dregið úr pappírsnotkun og frá árinu 2010 höfum við kolefnisjafnað útblástur af ferðum starfsmanna á bílum í eigu bankans. Fleiri verkefni af svipuðum toga eru í undirbúningi." Samfélagssjóður Landsbankans veitir ferns konar styrkir á hverju ári: námsstyrki, samfélagsstyrki, nýsköpunarstyrki og umhverfisstyrki.Eftirtaldir hlutu umhverfisstyrki úr Samfélagssjóði bankans að þessu sinni:500 þúsund króna styrkir:Landvernd - Umhverfis- og landgræðslusamtök Íslands Til að gera fræðsluefni um jarðhitasvæði á Íslandi, með það að markmiði að efla þekkingu, bæta umgengni og stuðla að sjálfbærri ferðamennsku á jarðhitasvæðum.Sigrún Ólafsdóttir, Jón Gunnar Bernburg og Sara Sigurbjörns-Öldudóttir Til að gera alþjóðlega rannsókn á viðhorfi til umhverfismála og sjálfbærni, sem styrkt getur forsendur fræðslu og menntunar til sjálfbærrar þróunar á Íslandi.Sólheimar - Sesseljuhús Umhverfissetur Til að efla fræðslustarf Orkugarðs á Sólheimum og standa að uppbyggingu Orkugarðs utandyra. Orkugarður er fræðslu og skemmtigarður um endurnýjanlega orkugjafa á Sólheimum250 þúsund króna styrkir:Arkitektafélag Íslands Til að gefa út fræðslurit Arkitektafélags Íslands um vistvæn málefni. Greint verður frá vistvænum sjónarmiðum í byggingarlist og skipulagi með það að markmiði að efla vitund um umhverfisáhrif bygginga.Arnfirðingafélagið í Reykjavík Til að standa að skógrækt og umhverfisátaki í Bíldudal sem unnið er af heimamönnum í sjálfboðastarfi.Ferðamálafélagið Súlan Til að merkja gönguleiðir á Langanesi en svæðið er á náttúruminjaskrá.Fuglavernd Til að ljúka gerð fræðsluefnis fyrir leikskólabörn um náttúruvernd þar sem fuglar Íslands eru í forgrunni.Gróður fyrir fólk í Landnámi IngólfsTil að starfrækja samstarfsverkefni á grunn- og framhaldsskólastigi um útiskóla við trjárækt og uppgræðslu árið 2012.Hjólafærni á Íslandi Til að standa fyrir hjóladögum í tíu skólum með það að markmiði að efla þekkingu barna á þýðingu hjólreiða fyrir samfélagið og hvetja til aukinna hjólreiða.Hrafnkell Karlsson Til að endurgera þjóðleið fyrir almenning frá Hrauni til Þorlákshafnar með endurhleðslu gamalla grjótvarða.Jóhannes Sturlaugsson Til að útbúa fræðslu- og kynningarefni um lífshlaup sjóbirtings (einkennisfisks straumvatna). Fræðsluefnið er einkum ætlað ferðamönnum sem heimsækja Kirkjubæjarklaustur.Landgræðslufélag Héraðsbúa Til að standa að landgræðsluverkefni þar sem ónýttar heyrúllur eru nýttar til uppgræðslu. Um er að ræða sjálfbært verkefni, því heyrúllur verða jafnan að úrgangi.Náttúran.is Til að þróa snjallsímaforrit með endurvinnslukorti fyrir Ísland sem ætlað er auðvelda aðgengi að endurvinnslustöðvum og fræða almenning um umhverfisvernd og sjálfbærni.Oddur Vilhelmsson Til að fjármagna rannsókn á örverum í jarðvegi en þær eru afgerandi fyrir árangur í landgræðslu.Sigurður Eyberg Til að fjármagna gerð heimildamyndar um „Vistspor Íslands." Myndin fjallar um þau áhrif sem lífsstíll Íslendinga hefur á umhverfið og tilraun höfundar að lifa sjálfbæru lífi.Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd Til að standa straum af efniskostnaði við gróðursetningu og fræsáningu í Hekluskógaverkefninu sem hefur verið starfrækt í 25 ár.Ungmennafélagið Einingin Til að bæta aðgengi og stuðla að umhverfisvernd við náttúruperlurnar, Aldey og Aldeyjarfoss sem laða stöðugt að fleiri ferðamenn.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Sjá meira