Þorsteinn hafnar ásökunum um að selja karfa á undirverði 29. mars 2012 21:30
Þorsteinn Már Baldvinsson neitaði öllum ásökunum um að selja karfa á undirverði til dótturfyrirtækis Samherja eins og fram hefur komið í Kastljósi. Þorsteinn var í viðtali við Kastljósi í kvöld þar sem hann benti á að verð á karfa á fiskimörkuðum væru ekki í samræmi við tölur Fiskistofu. Í tilkynningu sem Samherji sendi á fjölmiðla kom fram að í fyrra voru seld um 5.300 tonn af karfa á íslenskum fiskmarkaði. Heildarverðmæti var rúmar 1.200 milljónir króna. Björvin EA veiddi 240 tonn af karfa í fyrra og var skiptaverð til sjómanna 221 kr/kg. Á sama tíma var meðalskiptaverð hins vegar 202 kr/kg. Hægt er að lesa tilkynninu Samherja hér fyrir neðan:Í fyrra voru seld um 5.300 tonn af karfa á íslenskum fiskmarkaði. Heildarverðmæti var rúmar 1.200 milljónir króna. Björvin EA veiddi 240 tonn af karfa í fyrra og var skiptaverð til sjómanna 221 kr/kg. Á sama tíma var meðalskiptaverð hins vegar 202 kr/kg.Meðalskiptaverð til sjómanna sem lönduðu karfa á fiskmarkað á Íslandi í fyrra, eftir að dregið hafði verið frá 4% markaðsgjald og umsýslugjald fiskmarkaðar var 219 kr/kg á árinu. Meðalverðið var hæst fyrstu þrjá mánuði ársins en þá var skiptaverð tæplega 270 krónur, á þessu tímabili veiddu skip Samherja nánast engan karfa. Meðalskiptaverð frá fyrsta apríl til loka nóvember var hins vegar 202 kr/kg en á því tímabili fóru 4.250 tonn um fiskmarkað á Íslandi.Á umræddu tímabili veiddi Björgvin EA 240 tonn af karfa sem flutt voru út til Þýskalands. Skiptaverð sjómanna á Björgvin EA var á þessu tímabili 221 kr/kg. Samherji keypti á sama tímabili 863 tonn af karfa á fiskmarkaði á Íslandi til að flytja út til vinnslu í Þýskalandi. Með sömu útreikningum var skiptaverð til sjómanna skv. kjarasamningi úr þeim fiski sem allur fór um fiskmarkað 215 kr/kg. Hér eru bornir saman sambærilegir hlutir sem sýna að skiptaverð áhafnar Björgvins EA var hærra en skiptaverð úr þeim karfa sem fór yfir fiskmarkað á Íslandi á sama tíma. Áður en fiskur er síðan seldur til Icefresh GmbH fellur til ýmis kostnaður vegna flutninga og umsýslu hér á landi og erlendis sem bætist ofan á söluverðið. Allar ásakanir um brot á kjarasamningum og hvað þá brot á gjaldeyrislögum eru því fráleitar.Fullyrðingar um undirverð á fiski frá skipum Samherja til dótturfyrirtækis síns í Þýskalandi eiga því engan veginn við rök að styðjast. Það skiptir öllu máli í þessari umræðu að menn séu að bera saman rétta hluti og þar er eðlilegast að styðjast við gögn af íslenskum fiskmarkaði.Samherji harmar þá mistúlkun gagna og misskilning sem virðist hafa átt sér stað og ítrekar að félagið vísar á bug alvarlegum aðdróttunum vegna þess sem hér hefur verið rakið.Icefresh GmbH í GmbGG í ÞýskalandiIcefresh GmbH er dótturfyrirtæki Samherja, staðsett í Cuxhaven í Þýskalandi. Fyrirtækið var stofnað fyrir sex árum. Samherji á 85% hlutafjár og stjórnendur eiga 15%. Icefresh GmbH er framleiðslufyrirtæki og selur einungis eigin afurðir. Ekki má rugla félaginu saman við íslenska sölufyrirtæki Samherja sem heitir Ice Fresh Seafood með aðsetur á Glerárgötu 30 og sér um sölu á fiskafurðum.Velta Icefresh GmbH í fyrra var 40 milljónir evra eða rúmir sex milljarðar íslenskra króna. 61% af veltunni var vegna sölu á laxaafurðum sem félagið vinnur úr norskum laxi. Heildar hráefni til vinnslunnar á árinu 2011 var 11.500 tonn m.v. óslægt hráefni. Af því var karfi um 2.200 tonn, þar af komu 470 tonn af skipum Samherja hf. Það magn er um 4,1% af því hráefni sem tekið var til vinnslu hjá Icefresh GmbH á árinu og 3,4% af veltu fyrirtækisins. Hagnaður félagsins nam 1,3 milljónum evra eða um 200 milljónum króna. Það voru 3,3% af veltu eftir að félagið hafði greitt 28,5% tekjuskatt í Þýskalandi. Á árinu 2011 greiddi félagið 200 þús. evrur eða 30 milljónir króna í arð til hluthafa. Samherji fékk 85% þeirrar upphæðar inn á reikninga sína á Íslandi. Á árinu 2010 var hagnaður félagsins 740 þús. evrur. Af þessum tölum má vera augljóst að Samherji á Íslandi er ekki að flytja fjármuni úr landi til Icefresh GmbH og fullyrðingar um slíkt eru fráleitar og úr öllum takti við raunveruleika.
Mest lesið Bein útsending: Barist um formennsku í Framsóknarflokknum Innlent „Við erum áratugum of sein“ Innlent Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Erlent „Ég er heppin að hafa ekki brotnað“ Innlent Lilja Alfreðsdóttir er nýr formaður Framsóknarflokksins Innlent Obama um apamyndbandið: Ákveðin „trúðasýning“ og skortur á sómakennd Erlent „Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Innlent „Erfitt fyrir formann að taka við sitjandi utan þings“ Innlent Tölvuárás á Grund: Afrituðu gögn um tugi þúsunda manns Innlent Rósin segir sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar Innlent Fleiri fréttir Lilja Alfreðsdóttir er nýr formaður Framsóknarflokksins Áþreifanleg eftirvænting eftir nýja formanninum Formaður Bændasamtakanna hefur aldrei orðið hræddur við tré „Erfitt fyrir formann að taka við sitjandi utan þings“ Bein útsending: Barist um formennsku í Framsóknarflokknum „Við erum áratugum of sein“ „Margt jákvætt að gerast en allir á tánum“ Mikil spenna fyrir formannskjör Framsóknarflokksins „Ég er heppin að hafa ekki brotnað“ Öryggi, heilbrigðismál, Evrópa og efnahagur á Sprengisandi Tölvuárás á Grund: Afrituðu gögn um tugi þúsunda manns Rósin segir sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar Ný samræmd próf lögð fyrir Framsókn þurfi að þora að svara rangfærslum og hálfsannleik popúlista „Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Kjartan er kominn heim til Íslands Aldrei fleiri útskrifast frá Bifröst Gagnrýnir hversu seint og illa endurreisn Grindavíkur gengur Íslendingar stemmningsfólk sem taki öllum gleðidögum fagnandi Bein útsending: Sigurður Ingi ávarpar Framsóknarmenn í síðasta sinn sem formaður Segir einkaðila ekki hafa fengið svör í marga mánuði Ánægja með bæjarstjórann en Sjálfstæðismenn með mest fylgi Uppnám á bráðamóttökunni og seinagangur í Grindavík Fluttur á sjúkrahús eftir líkamsárás í Grafarvogi WhatsApp-skilaboð Auðuns til konunnar ekki metin gild Safnstjórinn segir þessa flugvél merkasta gripinn Herþotur frá Svíþjóð, Danmörku og Þýskalandi á Íslandi Tveir handteknir fyrir stórfellda líkamsárás og vörslu fíkniefna Landfylling í Skerjafirði: Óttast að borgin vaði af stað Loðnutorfur á hraðferð með suðurströndinni Sjá meira