Fótbolti

Rosalegur árekstur í landsleik | Ekki fyrir viðkvæma

Einn hræðilegasti árekstur sem sést hefur á fótboltavelli í háa herrans tíð átti sér stað í vináttulandsleik Ungverjalands og Ísraels á miðvikudag.

Þá rákust saman framherji Ungverja, Adam Szalai, og markvörður Ísraela, Dudu Aouate.

Ísraelski markvörðurinn fór með fæturnar í háls framherjans og fékk svo í kjölfarið eina rosalegustu byltu sem sést hefur.

Sem betur fer sluppu báðir leikmenn við alvarleg meiðsli en þeir voru merkilega fljótir að hrista af sér áreksturinn.

Myndband af atvikinu má sjá hér að ofan en það er ekki fyrir viðkvæma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×