Innlent

Margt má læra af viðbrögðum við Sandy

BBI skrifar
Mynd/AFP
Víðir Reynisson, deildarstjóri almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra, telur að margt megi læra af viðbrögðum Bandaríkjamanna við fellibylnum Sandy. Sérstaklega vakti athygli almannavarnardeildar hversu fljótt stjórnvöld gripu til aðgerða og hve alvarlegum augum þau litu hamfarirnar strax frá upphafi.

Í útvarpsþættinum Reykjavík Síðdegis sagði Víðir frá því helsta sem hann telur hægt að læra af Bandaríkjamönnum. „Það var hversu tímanlega var varað við storminum, hversu vel menn voru á tánum og hversu snemma stjórnvöld fóru að hvetja fólk til að undirbúa sig," sagði Víðir.

Því hefur verið fleygt að Sandy fimmti versti fellibylurinn í mannkynssögunni „Þá eru menn að vísa til tjónsins sem verður af storminum," segir Víðir og telur að eitt af því sem ýtir undir slík áhrif sé aukið þéttbýli. Sífellt fleiri búa á minni svæðum og því getur fárviðri haft þeim mun meiri áhrif. Þrátt fyrir það dregur hann ekki úr því að ofsinn í veðrinu hafi verið mikill og bendir bæði á að dæmalaus snjókoma hafi fylgt storminum og fregnir hermi að aldrei hafi flætt jafnillilega inn í lestarkerfi í Bandaríkjunum og núna.

Vatnið virðist hafa verið einn versti óvinurinn í þetta sinn. „Já, það er það sem veldur verstum vandamálum þarna. Það er þessi gríðarlega úrkoma og flóð," segir hann.

Víðir telur að skipulagsmál og nokkurs konar forvarnir gæti í raun komið í veg fyrir mikið tjón sem annars verður af náttúruhamförum, bæði hér á landi og annars vegar. „Öflugasta tæki sem almannavarnir hvar em er í heiminum hafa til að draga úr afleiðingum náttúruhamfara eru skipulagsmál," segir hann.

„Við höfum bent á að ef til væri löggjöf sem tryggði að byggð yrði ekki skipulögð á stöðum nema fram færi hættumat og niðurstöður þess væru hafðar til hliðsjónar þá væri byggð hérlendis líklega með öðrum hætti," segir hann og telur nauðsynlegt að slíku kerfi verði komið á.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×