Erlent

Fundu 1300 ára gamla fjöldagröf

Hauskúpur úr fjöldagröfinni.
Hauskúpur úr fjöldagröfinni. MYND / AP
Fjöldagröf sem talin var 50 ára gömul reyndist talsvert eldri en svo, eða 1300 ára gömul. Líkamsleifar 167 einstaklinga fundust í gröfinni samkvæmt Reuters fréttaveitunni.

Gröfin fannst í Suður Mexíkó og er talin tilheyra Maya ættbálknum.

Gröfin fannst í helli nærri bænum Frontera Comalapa sem er skammt frá landamærum Gvatemala. Vísindamenn sem hafa skoðað gröfina telja nær öruggt að gröfin sé svona gömul og segja hana bera öll einkenni sambærilegra grafa sem eru 700 til 1200 ára gamlar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×