Innlent

Enginn þingmaður hefur óskað Ólafi til hamingju

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hvorki ráðherrar né þingmenn höfðu óskað Ólafi Ragnari Grímssyni til hamingju með kosningaúrslitin í hádeginu í dag. Hann segir það vera í góðu lagi því kosningarnar snúist ekki um ríkisstjórnina. „Þær eru um fólkið í landinu, vilja þess og framtíðarsýn," sagði Ólafur Ragnar Grímsson í samtali við Lóu Pind Aldísardóttur á Bessastöðum í dag.

Þakklæti er Ólafi Ragnari ofarlega í huga í dag, daginn eftir kjördag. „Ég er mjög þakklátur fyrir þessa afgerandi niðurstöðu að fá 53% fylgi og að munurinn á milli mín og næsta frambjóðanda sé um 20% held ég að sé mikilvægt fyrir forsetaembættið og fyrir þjóðina," segir Ólafur Ragnar. Hann segir að þrír efnisþættir hafi skipt máli fyrir úrslit kosninganna.

Í fyrsta lagi sé vilji til þess að hafa valdið í höndum þjóðarinnar, en þar vísaði Ólafur til þess að hann hafi beitt málskotsréttinum.

„Í öðru lagi er það alveg rétt að Evrópusambandið var þáttur í því að fólki vildi hafa tryggingu fyrir því að þetta yrði ekki leiksoppur valdatafls milli Alþingis og þjóðarinnar," sagði Ólafur Ragnar um aðildarviðræðurnar.

Í þriðja lagi hafi vantraust á Alþingi hafi sett svip sinn á samræður sínar við fólkið í landinu í aðdraganda kosninga.

Smelltu á hlekkinn „horfa á myndskeið" með frétt til að horfa á viðtalið við Ólaf.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×