Rannsókn í Bökkunum lögð til hliðar - augljós ósannindi 5. september 2012 17:04
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lagt rannsókn á meintri árás í Bökkunum um helgina til hliðar þar sem augljóslega er um ósannindi að ræða. Í samtali við lögreglu kemur fram að maðurinn verður ekki kærður fyrir að gefa ranga skýrslu en málið þó litið alvarlegum augum. Það var á mánudaginn sem Fréttablaðið birti viðtal við Þórarinn Engilsbertsson, knattspyrnuþjálfara. Hann lýsti í viðtalinu að hann hefði komið að blóðugum dreng sem væri sex ára gamall á knattspyrnuvelli í Bökkunum, þar sem Þórarinn hafði verið í heimsókn hjá móður sinni. Þá fylgdi sögunni að fjórir 12-13 ára gamlir drengir hefðu gengið svo illilega í skrokk á sex ára drengnum að hann hefði kinnbeins- og handleggsbrotnað. Daginn eftir greindu fjölmiðlar á netinu frá málinu en við nánari eftirgrennslan kom í ljós að málið hafði ekki verið kært til lögreglu. Þá sagði Þórarinn í samtali við nokkra vefmiðla að drengurinn hefði ekki slasast jafn illa og raun bar vitni, heldur hefði hann tognað alvarlega á hendi og fengið blóðnasir. Síðar átti Þórarinn eftir að bæta við að fjölskylda drengsins væri farin af landi brott. „Ég er ekki að ýkja," sagði hann í sama viðtali við Vísi. Lögreglan hóf rannsókn á málinu af sjálfsdáðum og tók skýrslu af Þórarni. Kom þá í ljós að hann vissi engin deili á drengnum sem hafði lent í hinni hrottafengnu árás. Eftir umfangsmikla rannsókn lögreglunnar kom í ljós að enginn kannaðist við neitt. Þrátt fyrir að lýst var eftir foreldrum barnanna sem í hlut áttu í öllum helstu fjölmiðlum gaf sig enginn fram. Það er svo í Fréttablaðinu í dag þar sem Þórarinn viðurkennir að hafa ýkt um meiðslin, „en restina stend ég við," bætti hann við. Það er þó augljóst eftir rannsókn lögreglu og eftirgrennslan fjölmiðla að Þórarinn sagði ósatt, enda biðst Fréttablaðið afsökunar í dag á því að hafa treyst orðum ósannsöguls heimildarmanns. Málið þykir hið undarlegasta, ekki síst vegna þess að Þórarinn tók sérstaklega fram í fyrstu fréttinni að sjálfur ynni hann með börnum sem knattspyrnuþjálfari. Þórarinn þjálfar ungmenni hjá Stjörnunni í Garðabæ en þar neitaði félagið að tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. Ekkert hefur náðst í Þórarinn síðustu tvo daga þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Vísis.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent Fleiri fréttir „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Sjá meira