Milljaður í endurbætur á sundlaugum í Reykjavík 3. maí 2012 09:39 Frá framkvæmdum við Laugardalslaug.
Leiktæki, nýir heitir pottar, endurgerð búningsaðstöðu, eimböð og viðgerðir eru meðal þeirra atriða sem vinna á að í sundlaugum Reykjavíkur á þessu ári. Sérstakt stórhuga átaksverkefni sem borgarráð samþykkti á síðasta fundi sínum gerir ráð fyrir nær milljarði til þessa verkefnis næstu þrjú árin. 500 milljónir í ár, 400 milljónir á því næsta og 70 milljónir árið 2014. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Mörg verkefnin sem nú hafa verið samþykkt eru í beinu framhaldi af því átaki sem hófst í fyrra, en þá var blásið til sóknar fyrir betri sundlaugar í Reykjavík. Mörgum verkefnanna verður lokið með fjárveitingum í ár, en eins verður nýjum verkefnum ýtt af stað í ljósi óska sundlaugargesta og starfshóps sem vinnur nú að framtíðarsýn fyrir sundlaugarnar í Reykjavík með lífsgæði borgarbúa, sérstöðu Reykjavíkur og tækifæri sem áfangastaður ferðamanna að leiðarljósi. Meðal verkefna sem bætast nú á framkvæmdaáætlun er nýr heitur pottur í Vesturbæjarlaug en þar verða böð og búningsklefar endurgerðir, auk viðgerða á útiklefum. Þá verður bætt við leiktækjum fyrir sumarið og unnið að viðgerðum utanhúss. Í Sundhöllina koma einnig ný leiktæki en einkum verður farið í margvíslegar þarfar viðgerðir svo sem á laugarsalnum, sturtuklefum og útisvæði. Við Árbæjarlaug er verið að koma fyrir eimbaði og nýjum potti. Einnig verða komin ný leiktæki fyrir sumarið. Í Grafarvogslaug koma einnig ný leiktæki, auk þess sem á verkefnaskránni er endanlegur frágangur við nýtt eimbað, sem opnað var í byrjun ársins. Í Breiðholtslaug verða stigin vistvæn skref og jafnframt hagkvæm með uppsetningu á klórframleiðslutækjum fyrir útilaug. Eimbað Breiðhyltinga verður endurnýjað á næsta ári, en það hefur verið um nokkurt skeið í bráðabirgðaherbergi. Þá leggur starfshópurinn til að lóð vestan við laugina verði boðin út fyrir líkamsræktarstöð í tengslum við laugina. Við Ylströndina Nauthólsvík er verið að ljúka gerð eimbaðs og ástand Klébergslaugar verður tekið út. Endurnýjun á Laugardalslaug hefur mælst vel fyrir og þar er mörgum þáttum þegar lokið. Á þessu ári verður sjópottur opnaður, komið fyrir hreystitækjum, gert við útiklefa og vinna hefst við endurgerð búningsklefa inni og mun sú vinna standa fram á næsta ár, auk margvíslegra viðhaldsverkefna. Þá verður komið fyrir klórframleiðslutækjum fyrir útilaug, en það er hvort tveggja hagkvæmt og vistvænt. Borgarráð gaf á fundi sínum í lok apríl grænt ljós á áframhaldandi hönnun og framkvæmdir við sundlaugarmannvirkin í samræmi við fjárhags- og framkvæmdaáætlun borgarinnar.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Innlent Fleiri fréttir Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Sjá meira