Vinnuhópur meti afnám hafta 25. maí 2012 08:00 Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hitti Stefan Füle, stækkunarstjóra ESB, í gær, þar sem þeir ræddu meðal annars um samstarf um afnám gjaldeyrishafta á Íslandi. Mynd/Utanríkisráðuneytið
Íslensk stjórnvöld og framkvæmdastjórn Evrópu tilkynntu í gær um myndun sameiginlegs vinnuhóps um afnám gjaldeyrishafta á Íslandi. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir: „Frjálst flæði fjármagns er einn meginþátturinn í fjórfrelsinu á sameiginlegum innri markaði Evrópu og því liggur fyrir að ríki með gjaldeyrishöft geta ekki gerst aðilar að Evrópusambandinu.“ Því, að því er segir í tilkynningunni, er afnám gjaldeyrishaftanna viðfangsefni aðildarviðræðnanna og hlutverk vinnuhópsins að móta sameiginlegan skilning og meta leiðirnar út úr höftunum í samvinnu. Á fundi sínum í gær fóru Össur og Füle einnig yfir gang viðræðnanna og ítrekaði Össur þá afstöðu Íslands að hefja skyldi sem fyrst samningaviðræður um veigameiri málaflokka, til dæmis gjaldmiðilsmál, sjávarútveg, landbúnað og byggðamál. Ísland hafi í þessum málum bæði ríka hagsmuni og skýra sérstöðu sem aðildarsamningur þyrfti að taka tillit til. - þj
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira