Íslensk fornrit leggja grunn að norskri ferðaþjónustu Kristján Már Unnarsson skrifar 22. nóvember 2011 18:59
Fornsögum sem Íslendingar færðu í letur fyrir áttahundruð árum er haldið í heiðri í Noregi og þar rekin söfn og menningartengd ferðaþjónusta á grunni íslenska sagnaarfsins, sem Norðmenn telja reyndar vera sinn eigin sagnaarf. Sögunni víkur til Hálogalands og til Sandness á eyju sem til forna var kölluð Álöst en leiðin út í eyna liggur um hina glæsilegu Hálogalandsbrú. Eins og svo víða í Noregi þá hrópa fornar Íslendingasögur á okkur á Hálogalandi. Á þessum slóðum gerðust atburðir í Egilssögu Skallagrímssonar og á Sandnesi bjó Þórólfur Kveldúlfsson, bróðir Skallagríms. Hér er risinn sögualdarbær, sem á að minna á höfðingjasetur Þórólfs og konu hans, Sigríðar Sigurðardóttur á Sandnesi. Þar er Þórólfssteininn og á hann letruð orð Kveldúlfs eftir að Haraldur hárfagri hafði drepið son hans. Þarna er einnig minningarsteinn um Eyvind skáldaspilli, höfund elsta ritaða heitis á Íslendingum, sem þáverandi sendiherra Íslands, Eiður Guðnason, afhjúpaði á þjóðhátíðardegi Íslendinga árið 1995. Allt byggir þetta á fornsögum sem Íslendingar skrifuðu, Egilssögu og Heimskringlu Snorra Sturlusonar. Og svo hátt er sagnarfinum gert hér undir höfði að aðalgatan í bænum Sandnessjöen heitir eftir Þórólfi Kveldúlfssyni. Sveitarfélagið heitir Alstahaug og oddvitinn, Bård Anders Langö, rifjar upp nöfnin úr fornsögunum sem gerðust á svæðinu. Þarna voru Þórólfur Kveldúlfsson, Sigríður á Sandnesi og Hárekur á Þjóttu, sem Snorri Sturlusson ritaði einnig um. ,,Við erum afar stolt af þúsund ára gamalli arfleifð okkar," segir oddvitinn, enda hefðu þarna gerst mikilvægir atburðir í tengslum við kristnitökuna í Noregi í kringum árið 1000. ,,Ég er stoltur af arleifðinni. Við höfum meðal annars byggt langskála og söfn," segir oddvitinn í Alstahaug. Spurður hvort fólk viti að það voru Íslendingar sem skrifuðu sögurnar svarar oddvitinn: ,,Fólk hefur fengið þetta með barnaskólalærdómi en hvort það sé alltaf efst í huga að þetta voru Íslendingar veit ég ekki. En við verðum auðvitað að sjá til þess að fólk viti það."
Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent Fleiri fréttir Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Sjá meira