Bera kennsl á börnin og bjarga þeim 22. nóvember 2011 19:38
Íslenskir lögreglumenn hafa frá og með morgundeginum aðgang að alþjóðlegum gagnagrunni Interpol með myndum af börnum sem hafa verið misnotuð kynferðislega. Markmiðið er að bera kennsl á börnin og bjarga þeim. Gagnagrunnurinn var tekinn í notkun árið 2001 og frá þeim tíma hefur alþjóðalögreglunni tekist að bera kennsl á tæplega tvöþúsundogfimmhundruð börn um allan heim. Þegar tengjast ríflega þrjátíu lönd þessum gagnagrunni. Þessa dagana eru þrír íslenskir lögreglumenn í þjálfun hjá sérfræðingi Interpol til að læra á gagnagrunninn. „Það að Ísland hefur gert ráðstafanir til eftirlits á þessu sviði glæpa eru góðar fréttir fyrir börn á Íslandi," segir Uri Sadeh, verkefnisstjóri hjá Interpol. Strangar öryggisreglur gilda um vinnu með gagnagrunninn og fær enginn aðgang að honum hér á landi nema þeir einstaklingar sem hljóta til þess þjálfun. „Við tökum þátt með því að fara yfir þær myndir sem við fáum frá Interpol og einnig þær myndir sem við leggjum hald á hér, sem eru þá af íslenskum börnum, að við sendum þeim til að athuga hvort þær myndir væru komnar í dreifingu," segir Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Á blaðamannafundi sem haldinn var í dag kom fram að Interpol hefur öflugt eftirlit með vefsíðum sem gera út á ofbeldi gegn börnum. Sadeh tók dæmi af ákveðinni síðu sem hefði fengið um 16 þúsund gesti víðs vegar um heiminn á einni klukkustund. IP-tölur sýndu að Íslendingar voru meðal þeirra sem skoðuðu síðuna. „Sambandi verður komið á frá og með morgundeginum og þeir hafa öðlast hæfni til starfa. Ég er viss um að grunnurinn muni stuðla að því að borin verði kennsl á fórnarlömb á Íslandi," segir Uri.
Mest lesið Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent Hvalur háði hálftíma dauðastríð Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent Lögreglan leitar að Cezary Innlent Tveimur sagt upp á Bifröst Innlent Fleiri fréttir Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Mímósuísinn ljúffengur en gerir aldrei aftur Jägermeister-ís Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Lögreglan leitar að Cezary Aflvana togari hættulega nálægt landi Vegum lokað og bílar taldir Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Segir verk Þórbergs enn ótrúlega lifandi „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Stærsta kókaínmál Íslandssögunnar og ráðherra sakar starfsmenn Hvals um fíflaskap Lokaeinkunnirnar vísbending um ósamræmda einkunnagjöf Sjá meira