Jónas heiðursborgari Kópavogs 22. nóvember 2011 20:55 Bæjarstjórn Kópavogs ákvað á fundi sínum í kvöld að gera Jónas Ingimundarson píanóleikara að heiðursborgara Kópavogs mynd/Kópavogsbær
Bæjarstjórn Kópavogs ákvað á fundi sínum í kvöld að gera Jónas Ingimundarson píanóleikara að heiðursborgara Kópavogs. Með því vill bæjarstjórn sýna honum þakklæti fyrir ómetanlegt starf í þágu tónlistar, menningar og tónlistaruppeldis, segir í tilkynningu frá Kópavogsbæ. Í tilkynningunni segir jafnframt að Jónas hafi frá árinu 1994 starfað sem tónlistarráðunautur Kópavogs og hafi verið einn helsti hvatamaður þess að Salurinn, tónlistarhús Kópavogs var byggt, en það var vígt í janúar 1999. Hann er fjórði heiðursborgari bæjarins. „Jónas Ingimundarson hefur unnið ómetanlegt starf í þágu tónlistar og menntunar í Kópavogi," segir Hjálmar Hjálmarsson, forseti bæjarstjórnar Kópavogs í tilkynningu. „Dugnaður Jónasar, hæfileikar og listfengi hefur skapað honum nafn sem eins fremsta tónlistarmanns okkar Íslendinga." „Jónas er fæddur á Bergþórshvoli í Vestur-Landeyjum í Rangárvallasýslu 30. maí 1944. Hann hóf tónlistarnám sitt eftir fermingu hjá frú Leopoldínu Eiríks en árin þar á eftir stundaði hann tónlistarnám við Tónlistarskólann í Reykjavík og framhalsnám við Tónlistarskólann í Vínarborg. Hann lék á sínum fyrstu opinberu tónleikum árið 1967 en síðan þá hefur hann haldið fjölda tónleika hér heima sem og erlendis. Jónas skipulagði á sínum tíma að eigin frumkvæði skólatónleika með fjölda listamanna í Kópavogi, á Akranesi og á Selfossi en það starf leiddi til verkefnisins „Tónlist fyrir alla" sem hefur vakið mikla og jákvæða athygli. Jónas var sæmdur Riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 1994 og Dannebrog orðunni árið 1996. Hann hefur einnig hlotið heiðursverðlaun VÍS, Íslandsbanka og DV og þá hlaut hann heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna er þau voru í fyrsta sinn veitt árið 2001. Þrír Kópavogsbúar hafa áður verið gerðir heiðursborgararar í bænum, hjónin Finnbogi Rútur Valdemarsson og Hulda Jakobsdóttir, fyrrverandi bæjarstjórar, árið 1976 og Sigfús Halldórsson tónskáld árið 1994,“ segir í tilkynningunni. Bæjarstjórn hyggst heiðra Jónas Ingimundarson með móttöku í Salnum 4. desember næstkomandi.
Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent Fleiri fréttir Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Sjá meira